Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Tollkvótamál – Umboðsmaður Alþingis biður ráðherra um rökstuðning
Tollkvótamál – Umboðsmaður Alþingis biður ráðherra um rökstuðning Prenta Tölvupóstur
skjaldarmerki.jpgSamtök verslunar og þjónustu – SVÞ hafa til margra ára barist fyrir auknu frelsi í viðskiptum með landbúnaðarvörur. Samkeppni milli innlendrar og erlendrar framleiðslu leiðir til aukins vöruframboðs og jafnframt lægra verðs og er því gríðarlegt hagsmunamál fyrir íslenska neytendur.

SVÞ gerðu alvarlega athugasemd við nýtt tollafyrirkomulag sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem tók gildi árið 2009 og sem ráðherra hefur nú ákveðið að fylgja áfram. Með hinu nýja fyrirkomulagi var lagður tollur á tollverð vara í stað magntolla.


Ákvörðun þessi var fráleit þar sem  innflutningsverð landbúnaðarvara hefur nánast tvöfaldast frá árinu 2008. Með umræddri ákvörðun var komið í veg fyrir innflutning landbúnaðarvara og samkeppni því úr sögunni. 

Um er að ræða þrjár auglýsingar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna innflutnings á eftirtöldum vörum:

•    nautgripa-, svína- og alifuglakjöti
•    smjöri og ostum
•    unnum kjötvörum

Málsmeðferð ráðherra sem og eðli hins nýja tollafyrirkomulags er með öllu óásættanlegt og jafnframt ólögmætt að mati samtakanna. SVÞ lögðu því fram formlega kvörtun til Umboðsmanns Alþingis í júní síðastliðnum vegna ofangreindrar ákvörðunar.

Umboðsmaður Alþingis hefur nú ritað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf og beðið ráðherra um rökstuðning fyrir ákvörðun sinni.

Ráðherra hefur frest til 4. október til að svara erindi Umboðsmanns.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg