| SVÞ gagnrýna fréttaflutning ASÍ um þróun matvöruverðs |
|
|
Fréttatilkynning 7. september 2010Enn á ný hefur umræðan um samhengið á milli gengisþróunar og þróunar á verði innfluttra matvæla náð athygli fjölmiðla. Umfjöllun um málið í fréttum RÚV í gærkvöldi mátti skilja á þann veg að kaupmenn hefðu á undanförnum mánuðum hirt til sín allan ávinning af styrkingu krónunar undanfarna mánuði. Umræða um þessi mál sprettur upp með reglubundnu millibili og því miður er hún oft þannig að almenningur er engu nær um málið. SVÞ er þeirrar skoðunar að til þess að unnt sé að leggja mat á þessa þróun verði að horfa á hana yfir lengra tímabil en oftast er gert í umfjöllun ASÍ um þessi mál. Meðfylgjandi töflur sýna m.a. samanburð á þróun á verði innfluttra matvæla og þróun gengis íslensku krónunnar frá ársbyrjun 2007. Samkvæmt henni hækkuðu innflutt matvæli um rúmlega 63% frá ársbyrjun 2007 til júní 2010. Gengi íslensku krónunnar hækkaði á sama tíma um 82%.
Að mati SVÞ sýnir þessi samanburður svart á hvítu að kaupmenn hafa ekki
verið að maka krókinn á kostnað almennings eins og oft má ráða af
umræðunni um þessi mál. Þvert á móti sýna þessar töflur að kaupmenn
hafa á undanförnum árum tekið á sig verulega afkomuskerðingu vegna þess
gífurlega falls sem varð á gengi krónunnar í kjölfar efnahagshrunsins.
Þessu til viðbótar er bæði rétt og nauðsynlegt að benda á að á þeim
tíma sem um ræðir hafa hvað eftir annað komið til verulegar
kostnaðarhækkanir fyrir verslunina sem óhjákvæmilega hafa áhrif á allt
verðlag.
Heimild: Tafla og línurit unnið af Rannsóknasetri verslunarinnar á grunni upplýsinga frá Hagstofu Íslands Fréttatilkynning til útprentunar.
|