Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Tollkvótar
Tollkvótar Prenta Tölvupóstur
wto_logo.gifMikil umræða hefur að undanförnu farið fram um auglýsingar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á tollkvótum fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir. Eins og kunnugt er breytti núverandi ráðherra áralangri aðferð við úthlutun á þessum kvótum sem byggðist á því að tollur var álagður pr. kg. Reynslan sýndi að á meðan þessari aðferð var beitt var raunhæft að ná þessum vörum inn til landsins á nokkuð samkeppnishæfu verði.


Með þeirri breytingu sem varð á síðast liðnu ári, þegar svo kallaðir verðtollar voru teknir upp, var það gert útilokað fyrir innflytjendur ná vörunum inn á verði sem væri samkeppnishæft við innlenda framleiðslu. Þegar til viðbótar kom fordæmalaus veiking á gengi krónunnar á sama tíma, var það algerlega augljóst að innflutningur þessara vara var óraunhæfur.

Taflan hér að neðan sýnir þær gríðarlegu afleiðingar sem þessi breyting hefur í för með sér fyrir útsöluverð umræddra vara:

tollkvtar_-_mynd.jpg


 

 

 

 

 

Sú gagnrýni sem komið hefur fram á þetta fyrirkomulag úr ýmsum áttum að undanförnu verður vonandi til þess að hreyfing komist á málin og ráðherra sjái að sér. Það hvort svo verði kemur í ljós á næstu vikum.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg