Á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar hefur verið birt smásöluvísitala fyrir júlímánuð. Samkvæmt tilkynningu setursins dróst velta í dagvöruverslun saman um 2,4% á föstu verðlagi í júlí miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 1,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana saman í júlí um 1,9% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 4,4% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Sala áfengis dróst saman um 3,4% í júlí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 2,7% á breytilegu verðlagi.
Tilkynning frá RSV.
Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í
júlí 3,8% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 6,3% hærra í júlí
síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.
Fataverslun var 2,0% minni í júlí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu
verðlagi og jókst um 4,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á
fötum var 7,0% hærra í júlí síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr.
Velta skóverslunar jókst um 1,4% í júlí á föstu verðlagi og jókst um
14,1% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm
hækkaði um 12,5% frá júlí í fyrra.
Velta húsgagnaverslana var 5,9% minni í júlí en í sama mánuði í fyrra á
föstu verðlagi og var 1,7% minni á breytilegu verðlagi. Velta
sérverslana með rúm minnkaði um 11,5% frá því í fyrra á föstu verðlagi.
Verð á húsgögnum var 4,4% hærra í júlí síðastliðnum miðaða við sama
mánuð í fyrra.
Sala á raftækjum í júlí jókst um 13,1% á föstu verðlagi frá sama mánuði
í fyrra og um 15,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á
raftækjum hækkaði um 2,0% frá júlí 2009.
Verðlag og neysla
Verulega hefur dregið úr verðhækkunum frá síðasta ári og hefur verð
lækkað í öllum vöruflokkum frá mánuðinum á undan, nema verð á húsgögnum
sem hækkaði um 1,3% frá júní. Fataverslun í júlí, sem einkennast af
sumarútsölum, var 2% lakari að raunvirði en í júlí í fyrra.
Skóverslun gekk hins vegar betur og jókst um 1,4%. Raftækjaverslun
virðist heldur vera að ná sér á strik eftir mikinn samdrátt að
undanförnu. Þannig var raunvelta í raftækjaverslun 13,1% meiri í júlí
en í fyrra.
Verslun fyrir verslunarmannahelgina fór fram í júlí líkt og í fyrra. Ef
marka má þann raunsamdrátt sem varð í veltu dagvöruverslana og
áfengisverslun í júlí samaborið við júlí í fyrra má ætla að landsmenn
hafi ekki gert eins vel við sig í mat og drykk um síðastliðna
verslunarmannahelgi og í fyrra. Fjöldi erlendra ferðamanna til landsins
var 1,5% meiri en í júlí í fyrra samkvæmt mælingu Ferðamálastofu. Sú
aukning virðist ekki hafa skilað sér í aukinni sölu á mat og drykk og
rennir stoðum undir það mat ferðaþjónustuaðila að erlendir ferðamenn
spari meira við sig nú en í fyrra.
Velta í flestum tegundum smásöluverslunar hefur það sem af er þessu ári
verið heldur minni en á sama tímabili í fyrra að raunvirði. Samt sem
áður hefur náðst jafnvægi í flestum tegunda verslunar nema þeirra sem
selja varanlegar neysluvörur. Ýmsar hagtölur benda til að botninum sé
náð í samdrætti einkaneyslu. Dæmi um það er hækkun kaupmáttar launa í
júlí í fyrsta sinn um langt skeið, eða um 0,3%.
Nánari upplýsingar veita Kári Joensen (
Ţetta netfang er variđ fyrir rusltölvupósti, ţú ţarft ađ hafa Javascript virkt til ađ skođa ţađ
) og Emil B.
Karlsson (
Ţetta netfang er variđ fyrir rusltölvupósti, ţú ţarft ađ hafa Javascript virkt til ađ skođa ţađ
), forstöðumaður Rannsóknaseturs
verslunarinnar í síma 822 1203
|