Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Ný reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna hefur tekið gildi
Ný reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna hefur tekið gildi Prenta Tölvupóstur
Ný reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna hefur tekið gildi nr. 605/2010, má finna hana hér .

Eins og kunnugt er samþykkti  ESA - Eftirlitsstofnun EFTA  tímabundnar undanþágur fyrir tiltekna tegund farms á tilteknum leiðum á Íslandi með úrskurði sínum í byrjun júlí. Samgönguráðuneytið setti nýja reglugerð strax í birtingu og hefur hún þegar tekið gildi.

Flutningasvið SVÞ hefur lagt mikla vinnu í að sannfæra samgönguráðuneytið um að smásmuguleg framkvæmd evrópskra aksturs- og hvíldartímareglna eigi illa við á íslenskum vegum.

Enginn efast um að þreyta er áhættuþáttur í umferðinni og flutningasvið SVÞ er þar engin undantekning en að framfylgja þessum evrópsku reglum með þeim hætti sem gert hefur verið hér á landi er að mati flutningasviðsins mun frekar til þess fallið að auka streitu atvinnubílstjóra en að hvíla þá.

Þessi nýja reglugerð segir ekkert um það hver framkvæmdin verður. Það er framkvæmdin sem skiptir öllu máli og hana hafa íslensk yfirvöld í hendi sér.

Flutningasvið SVÞ hvetur samgönguráðherra og yfirmann samgöngumála að sjá til þess að eftirlit, sektir og refsingar vegna brota á þessum reglum taki mið af almennri skynsemi og sjái til þess að gera þetta umhverfi verði manneskjulegt og taki fullt mið af íslenskum aðstæðum. 

 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg