Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kynningarráðstefna um sæfiefni Prenta Tölvupóstur

eu_flag.jpgUmhverfisstofnun, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda standa fyrir kynningaráðstefnu um sæfiefni (biocides), markaðsleyfi og skráningar sem framleiðendur og innflytjendur þurfa að sækja um fyrir sínar vörur til að þær megi vera á markaði í löndum ESB og á Íslandi. Ef ekki er sótt um markaðsleyfi fyrir vöru þá verður hún tekin af markaði. Þetta er samkvæmt tilskipun ESB um markaðssetningu sæfiefna.

Ráðstefnan verður haldin miðvikudaginn 25. ágúst kl. 8:30-11:30 að Borgartúni 35, 6. hæð.


Efni sem flokkast sem sæfiefni eru sótthreinsandi efni, rotvarnarefni, útrýmingarefni og önnur efni. Sjá nánar í viðhengi.


1.    Hvað er sæfiefni? Almenn kynning, virk efni, sæfiefnaflokkar, áhættumat virkra efna, markaðsleyfi fyrir vörur.
Birgitta Í. Birgisdóttir, Umhverfisstofnun

2.    Gestafyrirlestur frá Svíþjóð: Undirbúningur í Svíþjóð til að uppfylla kröfur um markaðssetningu sæfiefna samkvæmt ákvæðum tilskipunar EB um markaðssetningu sæfiefna.
(Preparations in Sweden for the requirements of the Biocidal Products Directive)
Helena Casabona, KemI í Svíþjóð
Jenny  Rönngren, KemI í Svíþjóð

3.    Áhrif á Íslandi: Hvað þurfa íslensk fyrirtæki að gera? Upplýsingar um stöðuna á Íslandi. Kostnaður við að fá markaðsleyfi og gagnkvæma viðurkenningu á markaðsleyfum á Íslandi. Rammasæfiefni og samhliða innflutningur.
Sigríður Kristjánsdóttir, Umhverfisstofnun


Fundastjóri:  Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ

Að fundinum standa Umhverfisstofnun, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hjá Samtökum iðnaðarins í síma 5910100 eða á Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg