| Ávinninngur fyrir alla |
|
|
Í júlí fór af stað hvatningarátakið „Allir vinna“ en tilgangur átaksins er að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádráttar vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og frístundarhús þegar fagmenn vinna verkin. Að átakinu standa auk stjórnvalda Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands undir verkefnastjórn Elísabetar Sveinsdóttur.Undirtektir hafa verið ótrúlega góðar og hafa húseigendur nýtt sér vel þau kostakjör sem fyrirtæki hafa kappkostað að bjóða til að leggja sitt af mörkum til að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Auk þess sem viðskiptabankarnir leggja málinu lið með því að bjóða hagstæð lán til endurbóta á húsnæði. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðunni: www.allirvinna.is |