Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Árbók verslunarinnar 2010 Prenta Tölvupóstur
arbok_verslunarinnar_2010_forsa.jpgHagtölur um íslenska verslun

Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst hefur gefið út Árbók verslunarinnar 2010 – hagtölur um íslenska verslun í samstarfi við Kaupmannasamtök Íslands.

Í Árbókinni eru viðamiklar tölfræðilegar upplýsingar um verslun hér á landi á síðasta ári. Bókin inniheldur ýmsar upplýsingar um ytri skilyrði verslunar, verðlag, umfang, vöxt einstakra tegunda verslunar,  afkomu hennar í heild og eftir landssvæðum. Einnig er að finna í bókinni kort sem sýna dreifingu lágvöruverðsverslana í landinu.

Árbókina má nálgast hér. Einnig er hægt að panta prentað eintak af bókinni á heimasíðu Rannsóknaseturs verslunarinnar, www.rsv.bifrost.is.

Eftirtaldar upplýsingar koma eðal annars fram í Árbókinni:

•    Velta í smásöluverslun árið 2009 var 294,5 milljarðar kr.

•    Samdráttur í veltu smásöluverslunar árið 2009 nam 11% að raunvirði frá árinu áður og frá árinu 2007 nam samdrátturinn alls 15,5%. 

•    Árið 2009 var raunsamdráttur í byggingarvöruverslun um 45,5%, í raftækjaverslun 35,7% og 25,6% samdráttur í húsgagnaverslun.

•    Hlutur verslunar í landsframleiðslu var 10,5% árið 2009 og hefur haldist nokkuð stöðugur undanfarin áratug.

•    Árið 2009 störfuðu alls 21.200 manns við verslun á Íslandi, eða tæp 12,6% af heildarvinnuafli þjóðarinnar. Þar af voru karlar 12.600 en konur 8.600

•    Í janúar 2009 var fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis á Íslandi 1.157.922 m2 eða 3,6 m2 hvern íbúa landsins.  Fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis jókst um 6,6% frá sama tíma árið áður.

•    Heildarlaun afgreiðslufólks í sérvöru- og matvöruverslunum voru 238 þúsund að miðgildi árið 2009, samanborið við 370 þúsund ef horft er til allra starfsstétta

Tilgangur árbókarinnar er annars vegar að auðvelda þeim sem nú eru í verslunarrekstri að móta sér stefnu til framtíðar og hins vegar að gefa þeim sem hyggjast stofna til verslunarrekstrar hagnýtar upplýsingar sem gagnast við ákvarðanatöku. Árbókin nýtist einnig sem almennt hagfræðirit um verslun fyrir námsmenn, fræðimenn og almenning.

Árbókin fylgir hér áföst, en hana er einnig að finna á heimasíðu Rannsóknaseturs verslunarinnar, Árbók verslunarinnar 2010. Einnig er hægt að panta prentað eintak af bókinni á heimasíðunni, www.rsv.bifrost.is.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg