| Enn samdráttur í verslun í júní |
|
|
Samkvæmt tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar dróst velta í dagvöruverslun saman um 1,7% á föstu verðlagi í júní miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 2,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana saman í júní um 2,0% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 4,7% á síðastliðnum 12 mánuðum. Tilkynning frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Sala áfengis jókst um 1,7% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 8,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í júní 2,2% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 6,8% hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 3,2% minni í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 6,5% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum var 10,0% hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar minnkaði um 12,1% í júní á föstu verðlagi og jókst um 4,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 19,1% frá júní í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 10,1% minni í júní en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og var 3,1% minni á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana með rúm minnkaði um 21,5% frá því í fyrra á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum var 7,9% hærra í júní síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í júní jókst um 8,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 12,7% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 7,9% frá júní 2009. Verðlag og neysla Áframhaldandi raunsamdráttur var á milli ára í öllum tegunda verslunar í síðasta mánuði nema í raftækjaverslun og áfengisverslun. Reyndar var einnig samdráttur í áfengisverslun ef veltan er leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum. Mestur samdráttur var í skóverslun og húsgagnaverslun en dagvöruverslun dróst minnst saman. Þrátt fyrir samdrátt virðist jafnvægi smám saman vera að nást í verslun. Almennt hefur dregið úr verðhækkunum á flestum vörutegundum og verðlækkun varð á sumum vörutegundum í júní frá mánuðinum á undan. Þetta á til dæmis við um verð á dagvöru sem lækkaði um 1,3% frá fyrra mánuði. Ef marka má nýja þjóðhagsspá ætti samdrætti í einkaneyslu nú að vera lokið. Spáð er að einkaneysla dragist saman um 0,1% á þessu ári og aukist um 3,4% á næsta ári. Samkvæmt því má gera ráð fyrir að verslun fari smám saman að aukast á ný. Vísbendingar um að þessi spá geti gengið eftir sjást m.a. á því að kaupmáttarrýrnun hefur farið minnkandi og er kaupmáttur nú 3,3% minni en á sama tíma í fyrra. Þá var 2,7% raunsamdráttur í innlendri greiðslukortanotkun á tímabilinu janúar til maí síðastliðinn, sem er mun minni samdráttur en verið hefur undanfarið. Nánari upplýsingar veita Kári Joensen Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það )'; document.write( '' ); document.write( addy_text16333 ); document.write( '<\/a>' ); //-->\n Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og Emil B. Karlsson Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það )'; document.write( '' ); document.write( addy_text25448 ); document.write( '<\/a>' ); //-->\n Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það , forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar í síma 822 1203 |