Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Undanþágur frá aksturs- og hvíldartímareglum ESB samþykktar öðru sinni
Undanþágur frá aksturs- og hvíldartímareglum ESB samþykktar öðru sinni Prenta Tölvupóstur

hvldartminn_tekinn.jpg ESA - Eftirlitsstofnun EFTA hefur samþykkt beiðni samgönguráðuneytisins um undanþágur frá ítrustu ákvæðum aksturs- og hvíldartímareglna ESB. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október 2010 til 15. apríl 2011.

Það eru sögulegt að Eftirlitsstofnun EFTA samþykki undanþágur en í fyrri lotu hafnaði ESA öllum undanþágum Íslands frá reglunum.

Fastanefnd EFTA samþykkti þær aftur á móti 13. mars 2009 eins og hægt er rifja upp hér: Sérstakar aðstæður á Íslandi viðurkenndar, en samgönguráðuneytið dró það mál til baka þegar ESA hótaði að draga íslensk stjórnvöld  fyrir EFTA dómstólinn vegna málsins.

Íslensk stjórnvöld þrengdu undanþágubeiðnina í annarri lotu og báðu um aukinn sveigjanleika í daglegan aksturstíma vöruflutningabílstjóra með kælivöru í 11 klst. 4 daga í viku og akstur á leiðunum á milli Reykjavíkur og Freysness annars vegar og Freysness og Egilsstaða hins vegar í 5 klst. fram að hvíld. Þetta eru þær efnislegu undanþágur sem samgönguráðuneytið bað um í endanlegri beiðni sinni sem og fékk samþykktar. Undanþágubeiðni samgönguráðuneytisins frá 5. nóvember 2009 er aðgengileg hér. Niðurstöðu og samþykkt ESA er að finna hér. 

Farið var fram á að undanþágurnar giltu í 5 ár en niðurstaða ESA var eitt ár.

Flutningasvið SVÞ fagnar því að sérstaða Íslands er viðurkennd í niðurstöðu ESA og væntir breytinga af hálfu íslenskra stjórnvalda á framkvæmd þessara reglna á Íslandi í kjölfarið. Eins og ítrekað hefur komið fram af hálfu Flutningasviðs er það framkvæmd íslenskra stjórnvalda sem þarft er að breyta í þessu umhverfi. Þar liggur ábyrgðin og hefur gert frá upphafi. Íslensk stjórnvöld ákvarða um alvarleika brota á þessum reglum, sektir og refsingar.

Niðurstaða ESA um að takmarka niðurstöðuna við einn vetur 2010 - 2011 vekur margar spurningar en Flutningasviðið treystir því að íslensk stjórnvöld vinni áfram að hagsmunum Íslands í málinu eins og segir í tilkynningu samgönguráðuneytisins og vinni að því að fá varanlegar undanþágur  byggðar á viðurkenndri sérstöðu Íslands.

Yfirlit yfir sögu málsins, bréf, undanþágubeiðnir og fyrri úrskurði  er að finna hér:

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg