Þú ert hérna:ForsíðaEvrópumálEvrópufréttir Samteknar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á kröfum ESB til inn- og útflutnings 1. jan. 2011
Samteknar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á kröfum ESB til inn- og útflutnings 1. jan. 2011
Á meðan Ísland er ekki aðili að ESB gildir þetta
einungis um útflutning frá Íslandi.
Ef Ísland verður aðili að ESB breytist þetta þar sem
þessar kröfur eru ekki gerðar um viðskipti milli ESB ríkja, einungis um
viðskipti ESB við þriðju ríki.
Það er „Carrierinn"/farmflytjandinn (rekstraraðili
skipsins eða flugvélarinnar sem kemur inn til ESB) sem er ábyrgur fyrir skilum
á ENS en hann getur þó framselt þá ábyrgð til þriðja aðila.
Það er mikilvægt að útflytjendur kynni sér
fyrirhugaðar breytingar ekki síður en farmflytjendur enda verða þeir að standa
klárir á skilum umbeðinna upplýsinga í tíma.