|
Viðhald, verslun og þjónusta innanlands sumarið 2010
Stjórnvöld í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins efna til hvatningarátaks í þágu innlendrar atvinnustarfsemi, framleiðslu, verslunar og þjónustu. Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, og Nýsköpunarmiðstöð Íslands taka þátt í verkefninu.
Fólk er hvatt til þess að nýta sér endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattaívilnanir til að framkvæma og vinna við íbúðarhúsnæði og sumarhús og nýta sér fagmenn við þau verk.
Fréttatilkynning forsætisráðuneytisins.
Átakið felur meðal annars í sér persónulega ráðgjöf fagmanna um
handbragð við viðhaldsframkvæmdir undir leiðsögn byggingadeildar
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Leitað hefur verið til fjármálastofnana
um að taka þátt í átakinu og bjóða sérstök framkvæmdalán til almennings
á hagstæðum kjörum í tengslum við átakið. Þá mun Byggðastofnun bjóða
fyrirtækjum á landsbyggðinni óverðtryggð lán til viðhaldsverkefna. Þau
verða til 12 ára á 7% nafnvöxtum, óverðtryggt. Einnig verða vikuleg
tilboð á vörum og þjónustu íslenskra fyrirtækja í tengslum við átakið.
Í tengslum við hvatningarátakið er vert að minna sérstaklega á ákvarðanir stjórnvalda um:
a) hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhúsa í 100% úr 60%
b) skattaívilnanir til einstaklinga sem fjárfesta í viðhaldi á
eigin húsnæði sem nema allt að 200 þúsund króna lækkun á
tekjuskattsstofni hjá
einstaklingum og 300 þúsund krónum hjá hjónum og
samsköttuðum.
Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 28 milljónir króna.
Ríkissjóður leggur til 18 milljónir króna og aðilar vinnumarkaðarins 10
milljónir króna.
Reykjavík 25. júní 2010
|