Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Enn um gengismál og verðlag Prenta Tölvupóstur
kronur_og_sedlar.jpgEnn og aftur hefur sprottið upp umræða um tengslin milli gengisþróunar og verðlags. Nú síðast kom ASÍ fram með þá fullyrðingu að þróun verðlags hefði á undanförnum mánuðum ekki verið í takt við gengisþróun.

Af þessu tilefni skal það ítrekað enn og aftur að reynslan sýnir að verðlag í landinu þróast mjög í takt við gengisþróun. Það verða hins vegar deildar meiningar milli aðila um það hversu hratt verðbreytingar taka mið af gengisþróun. Svo hefur alltaf verið. Samtök launþega og samtök neytenda halda því fram með reglulegum hætti að verðlag aðlagi sig hægt að styrkingu á gengi krónunar, öfugt við það sem gerist þegar gengi hennar veikist.




 SVÞ heldur því fram að það sé eðlilegt samhengi þarna á milli og sýnir könnun sem Rannsóknarsetur verslunarinnar (RV) við Háskólann á Bifröst fyrir nokkrum árum að svo er. Þarna er um að ræða einu vísindalegu könnunina sem gerð hefur verið á þessum málum. RV er nú með í undirbúningi nýja rannsókn um þetta sama atriði.

Þeir aðilar sem hæst hafa um þessi mál minnast hins vegar aldrei á þann gífurlega kostnaðarauka sem fyrirtækin, ekki síst verslunarfyrirtækin, hafa tekið á sig að undaförnu. Nægir þar að nefna launahækkanir og skattahækkanir, en þar vegur hækkun tryggingagjaldsins þyngst. Ljóst er að sá útgaldaliður reynist fyrirtækjunum mjög þungur í skauti. Er þess vænst að næst þegar umræða kemur upp um þessi mál þá verði þau rædd frá öllum hliðum. Óneitanlega verður umræðan málefnalegri þegar það er gert.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg