| Opinber innkaup - tímabær endurskoðun |
|
|
SVÞ höfðu frumkvæði að því í byrjun júní að hefja endurskoðun á lagaumhverfi opinberra innkaupa á Íslandi. Nokkuð hefur borið á óánægju ýmissa fyrirtækja með framkvæmd opinberra innkaupa, bæði hvað varðar almenna málsmeðferð sem og hið eiginlega mat á gæðum vara sem fram fer í hverju tilviki. Úrskurðir kærunefndar útboðsmála eru mikilvæg heimild um hvað lagfæra megi og því hafa SVÞ, Fjármálaráðuneytið, FA, Reykjavíkurborg og Ríkiskaup ákveðið að hefja greiningu á helstu niðurstöðum kærnefndar í kærumálum síðustu 3 árin. Samhliða því að greina úrskurði kærunefndar verður rætt við alla helstu hagsmunaaðila og tekin saman sjónarmið um hvað megi bæta en jafnframt allt það kannað sem vel hefur reynst og ánægja er með. Fyrstu niðurstöður liggja fyrir í lok ágúst 2010. |