Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Breytingar á útflutningi til ESB frá og með 1. janúar 2011 Prenta Tölvupóstur
eu-bygging-brussel.jpgFlutningasvið SVÞ hefur verið upplýst um það lengi að vænta megi breytinga á viðskiptaumhverfi Íslands við ESB frá og með næstu áramótum en 1. janúar 2011 munu nýjar reglur taka gildi á grundvelli reglugerðar ESB nr. 1875/2006. Vert er að taka fram að reglugerðin er ekki tekin upp hér á landi þar sem hún varðar tolla en hún mun hafa áhrif á Ísland sem þriðja land í viðskiptum við ESB.


Það er að skýrast hvaða breytingar þetta eru og orðið ljóst að frá og með 1. janúar 2011 munu tollyfirvöld þess ríkis ESB þar sem íslenska farið lendir gera ákveðnar kröfur um forupplýsingar á rafrænu formi.

Kröfurnar sem gerðar eru til Íslands eru þær sömu og gagnvart Noregi en þó er Noregur frábrugðinn að því leyti að þeir gerðu samning við ESB um að vera hluti af þeirra kerfi um viðurkenningu útflytjanda „AEO – Authorised Economic Operator“ sem Ísland er ekki.

Ábyrgðin á því að skila forupplýsingum um útflutning viðkomandi fars áður en komið er í höfn verður hjá farmflytjandanum – skipafélaginu eða flugfélaginu - en þau munu þó geta framselt hana til þriðja aðila.

Það er mikilvægt að íslenskir út- og farmflytjendur kynni sér málið og verði viðbúnir þegar þar að kemur.  Frekari upplýsingar munu verða settar inn á vef flutningasviðsins innan skamms.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg