| Skilvirkir flutningar lífæð Evrópu |
|
|
Forstöðumaður flutningasviðs sat ráðstefnu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandins í vikunni þar sem kynnt var áætlun þeirrra um „Intelligent Transport System – ITS“ í fyrsta skipti. ITS eða „Intelligent Transport System“ gengur út á að búa til eina Evrópu hvað varðar fólks- og vöruflutninga en það er ljóst að Evrópa er hvað skipulag samgangna varðar í mörgu tilliti enn 27 ríki en ekki einn samhæfður markaður. Siim Kallas yfirmaður samgöngumálaflokksins hjá Framkvæmdastjórninni setti ráðstefnuna og lét hafa eftir sér m.a. að ITS snerist vissulega um tækni en það snerist fyrst og fremst um þjónustu, „services for real people with real needs“. Flutningasvið SVÞ fagnar mjög nýjum áherslum ESB um flutningagreinina sem þjónustugrein þar sem mörg atriði spila saman. Að samgöngur og flutningar eru fyrst og fremst keðja þar sem mörg atriði spila saman og framboðið miðar að því að svara eftirspurn markaðarins eftir þjónustu. Það er snemmt að segja til um hvað samþykkt ESB um ITS – Intelligent Transport System kemur til með að hafa á flutningagreinina heilt yfir eða einstakar greinar hennar en verður áhugavert að fylgjast með hugmyndinni og hvað hún mun þýða í framkvæmd. Flutningasvið mun birta frekari fréttir af ráðstefnunni og hafa glærur aðgengilegar á vef sviðsins. |