Á kynningarfundi með ráðuneytisstjóra, lögfræðingi og ráðgjafa samgönguráðuneytisins um fyrirhugaða sameiningu samgöngustofnana kom fram beiðni frá lögfræðingi LÍÚ um samanburðartöflu lagaákvæða. Ráðuneytið lofaði að verða við þeirri beiðni. Í máli hans kom fram að drögin að frumvörpunum boðuðu stjórnkerfisbreytingar sem væri mikilvægt að kæmu fram í greinargerð en ómögulegt væri að átta sig á í fyrirliggjandi drögum. Lögfræðingur ráðuneytisins fullyrti að
frumvörpin væru einföld og boðuðu engar sérstakar breytingar á
hlutverkum viðkomandi stofnana.
Margar fyrirspurnir voru lagðar fyrir fulltrúa ráðuneytisins á fundinum
og ljóst að menn voru áhugasamir um útkomu fyrirhugaðra hugmynda um
sameiningu stofnana. Það væri sameiginlegur hagur allra að vanda til
verkefnisins og tryggja góðar vandaðar stofnanir þar sem fagmennska
væri í fyrirrúmi og hagræðing næði fram að ganga. Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins fullyrti að það væri markmið
breytinganna. Að búa til sterkari stofnanir til að tryggja fagmennsku
og skilvirkni í störfum samgönguráðuneytisins og undirstofnana þess.
Flutningasviði SVÞ er verulega umhugað um útkomu fyrirhugaðrar
sameiningar samgöngustofnana. Styður eindregið aukna hagræðingu og
skilvirkni og hvetur alla þá sem að málinu koma að vanda til verka.
|