Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Nauđsynlegar umbćtur í fjármálum hins opinbera - tillögur SA kynntar 16. júní Prenta Tölvupóstur

sa_logo.gifSamtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera, miðvikudaginn 16. júní, á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum verður kynnt nýtt rit SA um fjármál hins opinbera og tillögur SA til umbóta. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra mun á fundinum bregðast við tillögum SA og fjalla um fjármál ríkisins. Sérstakur gestur fundarins verður David Croughan frá samtökum atvinnurekenda á Írlandi og mun hann m.a. segja frá aðgerðum Íra í kreppunni.

Skráning þátttöku á vef SA.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, mun kynna tillögur SA en að afloknum framsöguerindum Steingríms J. Sigfússonar og David Croughan fara fram umræður.

Í umræðunum taka þátt, Bjarni Benediktsson, alþingismaður,  Kirstín Flygenring hagfræðingur, Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður, Steingrímur Ari Arason, forstjóri og Sigríður Guðjónsdóttir lögreglustjóri.

Fundarstjóri er Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.

Fundurinn hefst kl. 8:30 í salnum Gullteig og verður lokið kl. 10:00. Léttur morgunverður og skráning frá kl. 8:00.

Þátttakendur fá eintak af nýju riti SA um fjármál hins opinbera. 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg