Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Styrkir til starfsmenntunar í atvinnulífinu Prenta Tölvupóstur
starfsmenntarad.pngStarfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunarverkefna í atvinnulífinu á árinu 2010. Til úthlutunar eru 55 milljónir króna. Umsóknarfrestur hefur verið lengdur til 25. ágúst nk.  Aðildarfyrirtæki SVÞ eru hvött til að kynna sér þá möguleika sem í boði eru en m.a. verða veittir styrkir til fræðsluverkefna sem stuðla að atvinnusköpun en einnig verða þróunarverkefni styrkt sem miðað að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu.
 



Á vef Starfsmenntaráðs kemur fram að til að hljóta styrk er gerð krafa um samstarf við samtök atvinnurekenda og launafólks við gerð og framkvæmd viðkomandi verkefnis.

Veittir eru styrkir í tveimur flokkum:

Flokkur A
Fræðsluverkefni sem stuðla að atvinnusköpun og fela í sér nýsköpun og þróun. Kostur er að um samstarf ólíkra aðila sé að ræða, t.d. frumkvöðla, framleiðenda og seljenda. Umsækjendur geta verið samstarfsklasar, félög og fyrirtæki og aðrir sem stunda sprotastarf.

Flokkur B
Þróunarverkefni  á sviði fræðslu, ráðgjafar eða þjálfunar sem miða að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu s.s. vegna breytinga á störfum, stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og á starfsemi fyrirtækja og stofnana. Niðurstöður verkefna verða að hafa almenna skírskotun og geta yfirfærst á önnur svið.

Nánari upplýsingar eru á vef Starfsmenntaráðs: www.starfsmenntarad.is

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg