Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Eru auglýsingar um tollkvóta löglegar? Prenta Tölvupóstur
wto_logo.gifNýverið auglýsti Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið eftir tilboðum í tollkvóta fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir, en ráðuneytið er skuldbundið til að auglýsa með þessum hætti eftir tilboðum samkvæmt skuldbindingum okkar við Alþjóðaviðskiptamálastofnunina (WTO). Allt þar til á síðasta ári voru auglýsingar þessar með þeim hætti að um var að ræða toll pr. kg. Reynslan sýndi að margir gerðu tilboð í þessa kvóta enda gat verið eftir nokkru að slægjast meðan auglýst var með þessu hætti.


Bæði á síðasta ári og aftur á þessu ári eru auglýsingar ráðuneytisins með þeim hætti, að kominn er verðtollur sem er það hár að telja má í meira lagi vafasamt að nokkur fyrirtæki sjái sér hag í því að bjóða í tollkvótana. Ekki verður annað ráðið af þessari breytingu en það að Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið ætli sér að koma í veg fyrir að íslenskir neytendur fái notið góðs af þeim afurðum sem fluttir yrðu inn á grundvelli skuldbindinga okkar við WTO. Slíkt er augljóslega fullkomlega óásættanlega hvernig sem á málið er litið.

SVÞ hefur sent erindi til Utanríkisráðuneytisins vegna þessa og óskað eftir því að ráðuneytið kanni hvort þessi aðferð Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins standist skuldbindingar okkar gagnvart WTO. Svars Utanríkisráðuneytisins er að vænta á næstu dögum.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg