| Styrkir vegna starfsmenntunar 2010 |
|
|
|
Umsóknir falli í annan hvorn flokkinn: Flokkur A Fræðsluverkefni sem stuðla að atvinnusköpun og fela í sér nýsköpun og þróun. Kostur er að um samstarf ólíkra aðila sé að ræða, t.d. frumkvöðla, framleiðenda og seljenda. Umsækjendur geta verið samstarfsklasar, félög og fyrirtæki og aðrir sem stunda sprotastarf. Flokkur B Þróunarverkefni á sviði fræðslu, ráðgjafar eða þjálfunar sem miða að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu s.s. vegna breytinga á störfum, stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og á starfsemi fyrirtækja og stofnana. Niðurstöður verkefna verða að hafa almenna skírskotun og geta yfirfærst á önnur svið. Gerð er krafa um samstarf við samtök atvinnurekenda og launafólks við gerð og framkvæmd viðkomandi verkefnis. Áhersla er lögð á að verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2010. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Starfsmenntaráðs www.starfsmenntarad.is Kynningarfundur þar sem áherslur ársins verða kynntar verður haldinn í næstu viku. Nánari upplýsinga er að vænta innan skamms um kynningarfundinn og úthlutun 2010 í fjölmiðlum og á heimasíðu Starfsmenntaráðs www.starfsmenntarad.is |