Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Fundur um fyrirhugaðar breytingar á samkeppnislögum Prenta Tölvupóstur
vogasklar.jpgSVÞ stóð fyrir almennum félagsfundi föstudaginn 21. maí um frumvarp til breytinga á samkeppnislögum sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Frummælandi á fundinum var Helga Melkorka Óttarsdóttir, hdl. hjá Logos lögmannsþjónustu, einn helsti sérfræðingur okkar í samkeppnisrétti.

Fram kom hjá Helgu að frumvarpið, ef af lögum verður, mun færa Samkeppniseftirlitinu mjög víðtækar heimildir til að hlutast til um stjórnarskrárvarin réttindi á borð við eigna- og atvinnuréttindi. Það er alltaf mikið áhyggjuefni þegar víðtækt vald er framselt til framkvæmdarvaldshafa og það á ekki hvað síst við þegar verið er að véla um stjórnarskrárvarin réttindi, sérstaklega þegar slík heimild er jafnt almennt orðuð og í þessu frumvarpi.

Kynning Helgu Melkorku Óttarsdóttur hdl.

Það sem um er að ræða og einkum veldur áhyggjum við frumvarpið er sú heimild sem Samkeppniseftirlitið fær til skipta upp fyrirtækjum eða fyrirskipa „breytingar á atferli og skipulagi“ og það án þess að fyrirtæki hafi gerst sek um brot á samkeppnislögum, en slíkt er skilyrði fyrir afskiptum af skipulagi fyrirtækja samkvæmt núgildandi ákvæði. Fram kom á fundinum að margir félagsmenn SVÞ hafa miklar áhyggjur af hinni fyrirhuguðu breytingu og telja að með henni sé verið að færa Samkeppniseftirlitinu allt of víðtækt vald.

Það sem einnig vekur athygli við að þetta frumvarp komi fram nú er að það er ekkert í EES rétti sem kallar á þessa breytingu. Einnig hefur verið á það bent að sambærilegt ákvæði var fellt út úr lögunum árið 2005, en það ákvæði var mjög umdeilt á þeim tíma og voru margir á því að það ákvæði færi gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Í ljósi þessa vekur það nokkra furðu að frumvarp þetta hafi verið lagt fram nú.

SVÞ, Samtök atvinnulífsins og Samtök fjármálafyrirtækja hafa sent Alþingi formlega umsögn um frumvarpið og eru þar reifuð öll þau atriði í frumvarpinu sem samtökin gera athugasemdir við.

Umsögnina má nálgast hér:

Umsögn til viðskiptanefndar Alþingis

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg