| Fyrirhuguð sameining samgöngustofnana kynnt í Siglingaráði |
|
|
Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins Ragnhildur Hjaltadóttir kynnti fyrirhugaða sameiningu samgöngustofnana á fundi Siglingaráðs í gær 20. maí. Í máli hennar kom fram að gert væri ráð fyrir að engar breytingar yrðu á núverandi verkefnum stofnananna og að engum starfsmönnum yrði sagt upp. Sameiningin væri fyrirhuguð á grundvelli þeirra stofnana sem sameina á og verkefnum þeirra.
Stjórnsýslustofnunin sem ráðgert er að verði til úr Flugmálastjórn,
Umferðarstofu og stjórnsýsluhluta Vegagerðar og Siglingastofnunar verði
150 manna stjórnsýslustofnun sem hafi sjálfstæði til að taka ákvarðanir
sem verða kæranlegar til ráðuneytisins. |