| Umsögn flutningasviðs um samgönguáætlun send Alþingi |
|
|
Flutningasvið SVÞ telur forgangsmál í samgöngumálaflokknum að sameinast um breytt verklag. Búa til líkan að faglegri ákvarðanatöku sem byggir á faglegum forsendum. Til að leggja áherslu á það skilaði flutningasviðið tveimur umsögnum til Alþingis um fyrirliggjandi samgönguáætlun. Annars vegar umsögn þar sem gerð er tillaga um að löggjafinn geri breytt verklag að forgangsmáli í samgönguáætlun til skamms tíma og tryggi þannig að þær stórframkvæmdir sem farið verði í byggi á faglegum forsendum. Hins vegar umsögn um þau meginatriði sem ástæða þykir til að benda á í fyrirliggjandi samgönguáætlun sem lögð er fram til bráðabirgða. Umsagnirnar má finna hér: |