Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Öflugt atvinnumálaráðuneyti styrkir atvinnulífið Prenta Tölvupóstur
skjaldarmerki.jpgSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu fagna því að stefnt skuli að fækkun ráðuneyta og þannig stefnt að hagræðingu og nauðsynlegum sparnaði hjá hinu opinbera.

Reynslan hefur sýnt að mikilvægt er að efla og styrkja ráðuneytin og er stofnun öflugs atvinnumálaráðuneytis mikilvægur liður í því verkefni, þar sem heildarhagsmunir atvinnulífsins verða í fyrirrúmi.

Atvinnulífið sjálft hefur góða reynslu af því að starfa sameinað innan Samtaka atvinnulífsins. Með samstarfi innan SA hefur skilningur einstakra atvinnugreina á öðrum atvinnugreinum aukist og aukin samvinna náðst í mikilvægum málum til farsældar fyrir atvinnulífið allt.


Með stofnun atvinnumálaráðuneytis er hið opinbera því að fylgja eftir fordæmi atvinnulífsins sjálfs með samvinnu atvinnugreinanna undir einu þaki.

Til að vel takist til við stofnun hins nýja ráðuneytis hvetur SVÞ til þess að samstarf verði haft við hagsmunasamtök í atvinnulífinu um hinar fyrirhuguðu breytingar.

Nánari upplýsingar gefur: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri, s. 820 4500.

Fréttatilkynning til útprentunar.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg