|
Auknar heimildir Samkeppniseftirlits – hverjar verða afleiðingarnar? |
|
|
|
Frumvarp til breytinga á samkeppnislögum liggur fyrir Alþingi sem mun - ef lögfest verður - færa Samkeppniseftirlitinu víðtækar heimildir til inngripa í starfsemi fyrirtækja. SVÞ boðar til almenns félagsfundar um hinar fyrirhuguðu breytingar og
afleiðingar þeirra. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 21. maí n.k.
að Borgartúni 35, 6. hæð og hefst kl. 8:30.
Frummælandi verður einn helsti sérfræðingur okkar í samkeppnisrétti, Helga Melkorka Óttarsdóttir, hdl., frá Logos – lögmannsþjónustu.
Meðal þeirra heimilda sem Samkeppniseftirlitið mun fá, er að hlutast
til um uppskiptingu fyrirtækja. Gífurlegt vald verður því framselt til
starfsmanna Samkeppniseftirlitsins til að taka ákvarðanir um
stjórnarskrárvarin réttindi á borð við eigna- og atvinnuréttindi.
Skráning þátttöku á netfang:
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 511 3000.
|