Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kreditkort tikynnir breytingar á greiðslutímabilum Prenta Tölvupóstur
kreditkort_300x42.gifEinn útgefandi kreditkorta hér á landi hefur tilkynnt breytingar á greiðslutímabilum, þannig að öll einstaklingskort útgefin af Kreditkortum  munu verða með útttektartímabil frá 26. hvers mánaðar til 25. næsta mánaða. Breytingar þessar munu hafa það í för með sér að handhafar kreditkorta sem útgefin eru af Kreditkortum verða með annað úttektartímabil en öll önnur kreditkort útgefin á Íslandi. Afleiðingarnar verða meðal annars þær að þegar verslanir eða verslanamiðstöðvar auglýsa nýtt kreditkortatímabil gildir slíkt ekki fyrir handhafa korta sem útgefin eru af Kreditkortum.


SVÞ hafa átt fund með forsvarsmönnum Kreditkorta og gert þeim grein fyrir óhagræðinu sem af þessari breytingu hlýst og hvatt fyrirtækið til að endurskoða afstöðu sína. Þeir hafa ekki orðið við þeirri beiðni, þrátt fyrir að ekki verði hjá því komist í tilkynningum um að ný kreditkortatímabil hafa byrjað, að greina sérstaklega frá því að slíkt eigi ekki við um þá sem hafa kreditkort útgefin af Kreditkortum.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg