Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kostnaðar- og ábatagreining forsenda stuðnings við veggjöld Prenta Tölvupóstur
tollhli.jpgFlutningasvið SVÞ brýnir löggjafann til að gera kröfu um faglegar forsendur við val á samgönguframkvæmdum og gerir það að forsendu fyrir stuðningi við veggjöld.

Unnið er að umsögn við samgönguáætlun sem nú liggur fyrir Alþingi. Í þeirri áætlun er frjálslega farið með hugmyndir um „notendagjöld“ .  Flutningasviðið varar mjög við því að það sé gert og hvetur löggjafann til að gera skýran greinarmun á hugmyndum um veggjöld fyrir dýr samgöngumannvirki og „notendagjöldum“ almennt í samgöngumálaflokknum.


Veggjöld eru þekkt aðferð víða um lönd til að fjármagna dýrar samgönguframkvæmdir þar sem ávinningurinn af framkvæmdunum er forsenda þess að vegfarendur séu tilbúnir að greiða gjald til að flýta framkvæmdum.

Stytting vegalengda er skýrt dæmi um augljósan ávinning af samgönguframkvæmd sem  geta réttlætt veggjöld. Hvalfjarðargöngin eru skýrasta dæmið um slíka framkvæmd. Ávinningurinn er í því tilfelli mun meiri en kostnaðurinn við að fara göngin.

Flutningasviði SVÞ er umhugað um að örva fjárfestingar í framkvæmdum til skemmri tíma en er ekki tilbúið til að veita stjórnvöldum stuðning við að taka ákvarðanir um að fara í framkvæmdir við dýr mannvirki án þess að faglegar forsendur liggi að baki. Gerir þess vegna kröfu um að kostnaðar- og ábatagreining þar sem forsendur eru þekktar liggi að baki ákvarðanatöku um val á verkefnum.
Flutningar innanlands eru kostnaður fyrir aðra atvinnustarfsemi í landinu. Opinberar álögur á flutninga innanlands koma fram í verði þjónustunnar innanlands eðli málsins samkvæmt. Flutningagreinin ber þá ábyrgð að gera skýra grein fyrir þessu samhengi.

Hugmyndir um „notendagjöld“  almennt í samgöngumálaflokknum eru nýjar af nálinni og mjög umdeildar innan Evrópusambandsins þar sem þær eiga uppruna sinn. Engin sátt liggur fyrir um útfærslur innan ESB og hagsmunasamtök flutningsfyrirtækja í Evrópu hafa látið málið mjög til sín taka enda augljóslega um að ræða nýja tegund af skatti á samgöngur sem óhjákvæmilega hefur áhrif á samkeppnisstöðu evrópskra fyrirtækja.
Flutningasvið SVÞ styður hugmyndir stjórnvalda í þá veru að þróa kerfi „notendagjalda“ til að standa undir vegaframkvæmdum samfara því að hætta innheimtu þungaskatts, olíugjalds og kolefnisskatts en hafnar almennt innheimtu á „notendagjöldum“ fyrir samgöngur á Íslandi. Slík þróun leiðir ekki til annars en skertrar samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Umsögn um samgönguáætlun verður aðgengileg í næsta fréttabréfi.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg