Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kynningarátak Svansins 14. -22. maí Prenta Tölvupóstur
svansmerki.pngUmhverfisstofnun vekur athygli á því að dagana 14.  – 22. maí stendur yfir kynningarátak um umhverfismerkið Svaninn. Tilgangurinn með átakinu er að auka verðmæti merkisins með því að auka hlutfall þeirra sem þekkja merkið og versla Svansmerktar vörur/þjónustu. Helstu skilaboðin eru að Svansmerkt er betra fyrir umhverfið og heilsuna. Strangar kröfur Svansins tryggja lágmörkun neikvæðra heilsu- og umhverfisáhrifa. Gæðin eru tryggð þar sem virknin þarf að vera jafn góð eða betri en í sambærilegum vörum og þjónustu. Slagorðið sem notast verður við er: Svanurinn fyrir umhverfið og heilsuna.


Meðal samstarfsaðila í átakinu eru m.a. Bylgjan, Neytendasamtökin, Fjarðarkaup, Samkaup, Nýherji, Ölgerðin, Hekla, Kaffitár, Húsasmiðjan, útgáfufélagið Birtingur, Prentsmiðjan Oddi, hjá Guðjóni Ó, Náttúran.is  o.fl. o.fl.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og ströngum kröfum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Alls er hægt að votta 65 mismunandi vöru- og þjónustuflokka. Umhverfisstofnun hefur umsjón með Svansmerkinu á Íslandi. www.svanurinn.is

Nánari upplýsingar veita  Anne Maria og Sigurð Eyberg hjá Umhverfisstofnun ( Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það , Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ).
 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg