Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Mörg mál bíða afgreiðslu Prenta Tölvupóstur
merki_sv_fyrir_augl.gifUm þessar mundir streymir mikill fjöldi mála til umsagnar frá skrifstofu Alþingis. Mörg þessara mála eru mikil að vöxtum og varða með einum eða öðrum hætti mikilsverða hagsmuni fyrir ýmis aðildarfyrirtæki SVÞ. Má hér nefna stóra bálka sem varðar flutningageirann miklu eins og frumvarp til nýrra hafnarlaga og þá hefur ný samgönguáætlun verið lögð fram sem þarfnast mikillar athugunar.

Þá hafa samtökin fengið til umsagnar frumvarp til breytinga á samkeppnislögum, sem ef af lögum verður, mun veita Samkeppniseftirlitinu heimildir til uppskiptingar á markaðsráðandi fyrirtækjum, en slíkar heimildir eru ekki til staðar í lögum í dag.
Ljóst er að slíkt ákvæði mun færa samkeppnisyfirvöldum áður óþekktar heimildir til inngripa í starfsemi fyrirtækja. Munu samtökin í næsta mánuði senda frá sér umsagnir um þessi mál og fleiri þar sem sjónarmiðum aðildarfyrirtækjanna verður komið á framfæri við þingið.

Félagsmenn eru hvattir til að koma ábendingum til skrifstofunnar um mál sem eru fyrir þinginu nú og þeir hafa skoðun á eða telja að bregðast verði við með einhverjum hætti.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg