| Vćntingasvísitala Capacent Gallup |
|
|
|
Slóð inn á fréttina í Morgunkorni. Hin aukna bjartsýni á að stórum hluta rætur sínar að rekja til þess að væntingar neytenda til aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði glæðast verulega frá fyrri mánuði, eða um fjórðung. Bjartsýnin til næstu 6 mánaða hefur ekki verið meiri síðan í maí 2008. Vonandi er meiri innistæða fyrir bjartsýninni nú heldur en þá, en eins og kom á daginn var bjartsýnin þá lítið annað en falskar vonir enda var bankakerfið hrunið hálfu ári síðar. Væntingavísitalan byggir á svörum úr skoðanakönnun sem fer fram lungann af apríl mánuði en margt hefur gerst á því tímabili sem gefur aukna ástæðu til bjartsýni nú. Önnur endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda er loksins um garð gengin og þá er ekki loku fyrir það skotið að birting skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis eigi einhvern þátt í aukinni bjartsýni landsmanna nú, enda mörgum létt að skýrslan hafi nú loksins litið dagsins ljós.Væntingar neytenda um horfur í efnahags-og atvinnumálum hafa nú glæðst um tæplega 16 stig frá sama tíma í fyrra á þennan mælikvarða. Væntingar neytenda eiga þó enn langt í land að teljast góðar, en þegar bjartsýnin var sem mest mældist vísitalan 155 stig í maí 2007. Væntingar landsmanna fóru svo minnkandi árið 2008 og hefur vísitalan verið undir 100 stigum síðan í mars það ár. |