| Mannréttindadómstóll Evrópu dćmir iđnađarmálagjald ólögmćtt |
|
|
mbl. is birtir á vef sínum frétt um að Mannréttindadómstóll Evrópu komst í morgun að þeirri niðurstöðu að íslensk lög um iðnaðarmálagjaldið standist ekki ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Um er að ræða mál, sem Vörður Ólafsson höfðaði gegn íslenska ríkinu en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu árið 2005 að álagning iðnaðarmálagjaldsins hefði verið lögmæt.Dómstóllinn í Strassborg komst að þeirri niðurstöðu, að íslensk stjórnvöld hefðu ekki getað réttlætt þá íhlutun í félagafrelsi Varðar, sem fælist í gjaldinu og ekki tryggt jafnvægis milli réttar hans til að neita aðild að félagi og þeirra hagsmuna sem fælust í því að þróa og efna iðnað í landinu. Þess vegna hefði ríkið brotið gegn 11. grein mannréttindasáttmálans um félagafrelsi.
Dómstóllinn í Strassborg komst að þeirri niðurstöðu, að íslensk
stjórnvöld hefðu ekki getað réttlætt þá íhlutun í félagafrelsi Varðar,
sem fælist í gjaldinu og ekki tryggt jafnvægis milli réttar hans til að
neita aðild að félagi og þeirra hagsmuna sem fælust í því að þróa og
efna iðnað í landinu. Þess vegna hefði ríkið brotið gegn 11. grein
mannréttindasáttmálans um félagafrelsi.
Úrskurðaði dómstóllinn að íslenska ríkið skuli greiða Verði 26 þúsund
evrur í málskostnað en hann hafði ekki farið fram á skaðabætur. |