Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Áfengissala er betur komin hjá einkaaðilum Prenta Tölvupóstur
vinbudin_169px.gifEnn á ný hefur athygli manna beinst að því hversu dapur rekstur er á ríkiseinokunarfyrirtækinu ÁTVR. Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi undan farin mörg ár selt fleiri áfengislítra en árið áður hafa tekjur fyrirtækisins alls ekki aukist í samræmi við það. Þvert á móti hefur hagnaður þess dregist saman á meðan rekstrarkostnaður hefur aukist að mun.

Það getur hvorki talist eðlilegt né ástættanlegt að einokunarfyrirtæki í opinberri eigu sé rekið með þeim hætti sem raun ber vitni. Til að setja málið í samhengi þá liggur fyrir að á árunum 2002 til 2008 jókst áfengissala í lítrum talið um 35% á sama tíma og tekjur ÁTVR af áfengissölu jukust aðeins um 4,7% að teknu tilliti til verðbólguáhrifa. Rekstrarkostnaður fyrirtækisins hefur á sama tíma aukist um 38%.



Það sem kemur rekstri ÁTVR réttum megin við strikið er sala þess á tóbaki, en hlutur þess í heildar rekstrarsölutekjum fyrirtækisins er um 32%. Afar lítill hluti rekstrarkostnaðar þess er vegna sölu á tóbaki.

Eðlileg viðbrögð hins opinbera við svo slælegum rekstri væri að færa hann í hendur einkaaðila. Fullyrða má að einkaaðilar myndu sinna þessari starfsemi á mun hagkvæmari hátt en nú er og það án þess að skerðing yrði á þjónustunni. Notum því tækifærið og tökum þennan kaleik af ríkinu og færum sölu áfengis til einkaaðila.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg