| Vika verslunar og þjónustu - Spilum saman |
|
|
|
Samtök verslunar og þjónustu ætla, í samvinnu við VR, að blása til sérstakrar „Viku verslunar og þjónustu“ dagana 11. – 17. mars n.k.
Tilgangurinn er tvíþættur;
Þema vikunnar er samspil einstaklinga og atvinnulífsins þ.e.a.s. til þess að fyrirtæki geti verndað og aukið störf þurfa þau á neyslu almennings að halda. Við erum öll hluti af sömu keðjunni og með samhentu átaki getum við eflt hana og styrkt.
Barmmerkjum og A-stöndum verður dreift til fyrirtækja í næstu viku. Hafið samband við skrifstofu SVÞ ef þið fáið ekki þetta kynningarefni til ykkar, það má þá sækja það á skrifstofu SVÞ, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Öflug markaðsherferð
Til að vekja athygli á átakinu og fá landsmenn til að taka þátt, hefur margskonar auglýsinga- og kynningarefni verið útbúið. Auk þess að birta auglýsingar í stærstu fjölmiðlum landsins verður barmmerkjum og borðstöndum dreift í allar verslanir landsins, sem við hvetjum ykkur til að nota óspart meðan á átakinu stendur. Allar nánari upplýsingar um kynningarefni er að finna á þessari vefsíðu. Merkjum allt auglýsingaefni Flestir stærstu auglýsendur landsins eru félagar í SVÞ og er það markmið okkar að merki átaksins (lógó) „Spilum saman“ sjáist á öllu auglýsingaefni þeirra í prentmiðlum á tímabilinu. Nú þegar hafa flestar auglýsingastofur landsins fengið merkið sent til sín, en það má jafnframt nálgast hér á þessari vefsíðu. Þú átt leik Þú spilar stórt hlutverk því fljótlegasta leiðin til að kynna „viku verslunar og þjónustu“ meðal starfsmanna aðildarfélaga SVÞ er þegar þú áframsendir þennan tölvupóst á sem flesta starfsmenn innan þíns fyrirtækis og hvetur fólk til að spila með og koma hjólum atvinnulífsins í gang saman. |