| Skorað á yfirvöld og hlutaðeigandi sveitarstjórnir |
|
|
Á opnum fundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á fimmtudaginn var samþykkt ályktun þar sem skorað er á samgönguyfirvöld og hlutaðeigandi sveitarstjórnir að líta til heildarhagsmuna og stuðla að því að hefjast megi handa við þær samtals 20 km vegstyttingar sem kynntar hafa verið í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði sem allra fyrst. Ályktunina má finna hér. Flutningasvið SVÞ fagnar því mjög að þeim fjölgar stöðugt sem tala upphátt fyrir því að horft sé til heildarhagsmuna við ákvarðanir sem þessar. Í leiðara Vikudags á Akureyri á föstudaginn er yfirskriftin „Samgöngumál skipta alla landsmenn máli“ og segir þar m.a. „Hér þurfa stjórnvöld að grípa inn í, með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi, enda er löngu kominn tími til að leggja hreppapólitíkina til hliðar“. Leiðarann má finna hér. Flutningasvið SVÞ tekur heilshugar undir þessi orð ritstjórans og hvetur alla sem áhuga hafa á að horft sé á samgöngur landsins út frá heildarhagsmunum að láta í sér heyra. Samgöngur eru eins og margoft hefur verið bent á er lífæð atvinnulífs í landinu og getur haft afgerandi áhrif á þróun byggðar. Bættar vegasamgöngur, mögulegar styttingar og aukið umferðaröryggi svo dæmi séu tekin eru án vafa sameiginlegir hagsmunir landsmanna allra hvort sem litið er á landsbyggðina eða höfuðborgarsvæðið. Það er fyrir löngu kominn tími til að þannig sé horft á þennan mikilvæga málaflokk. |