Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Vika verslunar og þjónustu – undirbúningur að fara í fullan gang
Vika verslunar og þjónustu – undirbúningur að fara í fullan gang Prenta Tölvupóstur

spilum_saman_logo.jpgNú er undirbúningur að verkefninu „vika verslunar og þjónustu“ að fara í fullan gang. Því verður sem kunnugt er hleypt formlega af stokkunum á aðalfundi SVÞ þann 11. mars n.k.

Markmið átaksins er að vekja vel og rækilega athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu sem atvinnugreinar og í því sambandi að minna rækilega á að fjórði hver Íslendingur sem vinnur á almennum vinnumarkaði er starfandi í þessari atvinnugrein. Verkefnið mun hafa jákvæða nálgun og vísa til þess hversu mikilvægt það er að allir taki þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins, hvort sem það er með litlum eða stórum viðskiptum.

Nálgast má kynningu á verkefninu hér. 

Allir sem verkefnið hefur verið kynnt fyrir hafa sýnt jákvæð viðbrögð og lýst yfir ánægju með þetta framtak. Það sé mál til komið að koma með jákvæð skilaboð inn í samfélagið og hvetja fólk til að leggja sitt af mörkum til að atvinnulífið haldi áfram að snúast.

Félagsmenn SVÞ munu svo á næstu dögum fá nánari upplýsingar um hvernig það verður nánar útfært.

Munið að markmiðið er að allir taki þátt í verkefninu og að allir græði á því.
 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg