Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Hollustan í fyrsta sæti
Hollustan í fyrsta sæti Prenta Tölvupóstur
Neytendaráðherra Dana, Carina Christensen, hefur lagt til við stærstu marvöruverslanakeðjurnar að þær sameinist um að staðsetja alla óhollustu á lítt áberandi stöðum í verslunum sínum og í staðinn láta grænmeti og ávexti fá bestu staðsetningarnar. Hún vill líka sjá vörur eins og jógúrt með miklu sykurinnihaldi og feita matvöru á minna áberandi stöðum en nú tíðkast.
Offituvandamál meðal barna og fullorðinna er vaxandi vandamál í Danmörku eins og víðast hvar annars staðar í hinum vestræna heimi og ekki verði lengur litið fram hjá því án aðgerða. Carina telur marga Dani lifa óheilsusamlegu líferni og stór hluti af vandamálinu séu matarinnkaupin. Með því að fara út í aðgerðir eins og þessar megi m.a. koma í veg fyrir martröðina við búðarkassana þegar börnin heimta það sem fyrir augu ber í hvert sinn sem borgað er. Tillögur Carina hafa fengið góðan hljómgrunn meðal stjórnmálamanna sem eru sammála um að smásöluverslunin eigi að sýna samfélagslega ábyrgð og taka þátt í því að almenningur velji hollar og heilsusamlegar vörur fram yfir óhollustu. Forsvarsmenn smásöluverslana hafa tekið misvel í tillögurnar og t.d. hefur Dansk Supermarked, sem stendur á bak við Netto,Bilka og Føtex, ekki viljað tjá sig um málið.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg