Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Nám í verslunarstjórn - fyrir fólk með reynslu Prenta Tölvupóstur
retail.jpgUndanfarin tvö ár hefur Verzlunarskóli Íslands, í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og tvo skóla í Skotlandi og Finnlandi, unnið að undribúningi verslunarstjóranáms, Verslunarstjórn fyrir fólk með reynslu. Aðalmarkhópar verkefnisins eru starfsmenn í verslun og þjónustu sem óska þess að bæta við sig þekkingu og færni. Námið er skipulagt sem fjarnám með tveimur staðbundnum lotum seinnipart dags.

Námsefnið samanstendur af níu áföngum sem hægt er að taka hvern fyrir sig eða saman sem eina heild. í byrjun mars ætlar Verzlunarskólinn að fara af stað með tvo áfanga, fjármál og vöruframsetning. Skólinn mun bjóða 10 – 20 nemendum í þetta nám þeim að kostnaðarlausu. Hér er um ákveðna prufukeyrslu að ræða og verður þetta nemendum að kostnaðarlausu. Upplýsingar um námið veitir Kirsten Friðrikssdóttir verkefnastjóri, netfang: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það , sími: 5 900 600.




Forkröfur eru þær að nemandi hafi náð a.m.k. 18 ára aldri og unnið minnst eitt ár í verslun/þjónustustörf. Einnig er það mjög góður undirbúningur ef viðkomandi hefur lokið verslunarfagnámi frá Verzlunarskólanum, Mími eða annarri fræðslustofnun.

Yfirlit yfir námsáfanga:

•    Upplýsingatækni: Netið, löggjöf, tölvupóstur, töflureiknir, ritvinnsla, glærugerð. Þessi áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa litla eða enga tölvukunnáttu.
•    Stjórnun I: Kenningar um stjórnun, form fyrirtækja, markmiðssetning, áætlanir, framkvæmd, upplýsingaflæði, samskipti, skipulagning funda, gæði tryggð.
•    Markaðsfræði: Inngangur, markaðsumhverfið, kynningarstarf, markaðsrannsóknir, vörumerki, markaðsáætlanir.
•    Vöruframsetning: Inngangur, hönnun verslana, rýmisstjórnun, sjónræn framsetning, kynningaraðferðir, hughrif, vefsíðuhönnun.
•    Innkaup og sala: Inngangur, tegundir vörumerkja, birgjar, samningatækni, eigið vörumerki, lög og siðfræði, sölutækni.
•    Fjármál: Grunnhugtök í bókhaldi, bókhald, virðisaukaskattur, ársreikningar, fjárfestingar, arðsemi.
•    Hagfræði: Inngangur, grunnhugtök í hagfræði, verkefnahluti 1, verðbólga, alþjóðahagfræði, verkefnahluti 2.
•    Vinnuréttur: Stéttarfélög, samningar, uppsagnir og bætur, ágreiningur á vinnumarkaði, spurningar, dómar.
•    Stjórnun II: Áætlanagerð, verkefnastjórnun, tengslanet, mannauðsstjórnun, upplýsingaflæði.

Forkröfur eru þær að nemandi hafi náð a.m.k. 18 ára aldri og unnið minnst eitt ár í verslun/þjónustustörf. Einnig er það mjög góður undirbúningur ef viðkomandi hefur lokið verslunarfagnámi frá Verzlunarskólanum, Mími eða annarri fræðslustofnun.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg