| Íslenska ánægjuvogin - niðurstöður 2009 |
|
|
Í tilefni af birtingu niðurstaðna Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2009, verður haldinn morgunverðarfundur á vegum gæða- og þjónustustjórnunarhóps Stjórnvísi þriðjudaginn 23. febrúar kl. 8.15-10.00 í Turninum, Kópavogi.Auk kynningar á niðurstöðum Ánægjuvogarinnar munu tveir valinkunnir fræðimenn flytja framsögur, sem svo sannarlega eiga erindi við stjórnendur í dag. Að kynningu lokinni verða veittar viðurkenningar þeim fyrirtækjum sem skoruðu hæst í rannsóknum Ánægjuvogarinnar 2009. Skráning hér á vef Stjórnvísi. Framsögumenn: 1. Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Hí, fjallar um: "Hvernig má bregðast við breyttum þörfum viðskiptavina"? 2. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ, fjallar um: "Traust - rof og uppbygging“. Að framsögum loknum mun Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri Capacent Gallup, kynna niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2009 – þetta árið eru niðurstöðurnar afar athyglisverðar og margt sem kemur verulega á óvart. |