Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Vika verslunar og þjónustu Prenta Tölvupóstur

hnappur1.jpgSamtök verslunar og þjónustu vinna nú að undirbúningi „viku verslunar og þjónustu“ sem hleypt verður af stokkunum á aðalfundi samtakanna þann 11. mars n.k. Mun átakið standa yfir dagana 11. til 17. mars.

Markmiðið er tvíþætt:

  • að vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu, þeirrar atvinnugreinar þar sem u.þ.b. fjórði hver Íslendingur á vinnumarkaði starfar
  • að hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt til þess að „spila með“ og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki.


Undirbúningur þessa átaks hefur verið í höndum stjórnar SVÞ og markaðsfólks frá auglýsingastofunni ENNEMM. Átakið hefur alls staðar fengið mjög jákvæð viðbrögð þar sem það hefur verið kynnt.  Það hlaut t.d. mjög góðar undirtektir á kynningarfundi sem haldinn var með fjölmiðlum í gær.

Til að kynna átakið fyrir félagsmönnum SVÞ er boðað til almenns félagsfundar hjá samtökunum  og verður hann haldinn föstudaginn 19. febrúar n.k. kl. 8:30.  Fundurinn verður haldinn á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Markmiðið er að allir taki þátt í átakinu og allir græði á því.

Skráning á netfang: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg