| Dregur úr sölu áfengis |
|
|
Samkvæmt tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar dróst velta í dagvöruverslun saman um 3,9% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 2,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta dagvöruverslana í janúar um 3% frá janúar í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 6,8% á þessu 12 mánaða tímabili. Sjá tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar hér. Sala áfengis minnkaði um 15% í janúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 0,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í janúar 12,5% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 17,8% hærra í janúar síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra. Fataverslun var 8,5% minni í janúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en jókst um 5,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt veltuvísitala fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar saman um 7,1%. Verð á fötum var 15,2% hærra í janúar síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar dróst saman um 14,4% í janúar á föstu verðlagi og jókst um 4% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Leiðrétt veltuvísitala fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta skóverslunar saman um 14,4%. Verð á skóm hækkaði í janúar um 21,6% frá janúar í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 34,9% minni í janúar en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 29,4% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 8,5% hærra í janúar síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í janúar minnkaði um 5,5% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um jókst 4,5% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 10,6% frá janúar 2009. Verðlag og neysla Dregið hefur úr sölu áfengis í takt við hækkandi verðlag. Verð á áfengi er nú 17,8% hærra en fyrir ári síðan og salan dróst saman á sama tímabili um 15% að magni til. Um áramótin hækkaði áfengisgjald um 10% og virðisaukaskattur á áfengi um eitt prósentustig. Þessi gjöld hafa vafalítið haft áhrif á sölu áfengis í janúar. Langt er síðan svo lítil áfengissala hefur verið í einum mánuði. Leita þarf allt aftur til janúar 2006 til að finna álíka raunveltu í sölu áfengis, en það ár var einum laugardegi færra í janúar en á þessu ári. Velta dagvöruverslunar dróst saman að raunvirði og hefur ekki verið jafnlítil frá því í febrúar 2009. Hækkun á virðisaukaskatti um síðustu áramót hefur takmörkuð áhrif á verðhækkanir dagvara því sú skattahækkun náði ekki til matvæla. Minna var keypt af fötum, skóm og raftækjum í janúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Þó janúarútsölurnar hafi skilað aukinni veltu í krónum talið varð samdráttur að magni til. Enn er samdráttur í sölu húsgagna. Velta húsgagnaverslunar á föstu verðlagi í janúar var aðeins um 1/3 af því sem hún var þegar mælingar Rannsóknaseturs verslunarinnar hófust í ágúst 2007 eins og sést á skýringarmyndinni hér að neðan. Verð á húsgögnum hefur samt hækkað minna en á öðrum sérvörum. Hagstofan áætlar að áhrif neysluskatta sem lagðir voru á um áramótin hafi valdið 0,74% verðhækkunum. Skattarnir hafa þó mismikil áhrif eftir vörutegundum. Fram kemur í Hagvísum Hagstofunnar að kaupmáttur launa hafi verið 7,3% minni árið 2009 en árið áður og að innlend greiðslukortavelta ársins hafi verið 15,6% minni að raunvirði en árið áður. Samkvæmt þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins verður einkaneysla 6,1% minni árið 2010 en árið áður og atvinnuleysi aukist heldur á árinu. Árið 2011 farið efnahagslífið síðan aftur að rétta úr kútnum. Ef þessi spá gengur eftir má ætla að enn um skeið verði samdráttur í veltu á dýrum og varanlegum vörum. |