|
Áskorun til stjórnvalda um pólitíska stefnumótun til framtíðar! |
|
|
|
Flutningasvið SVÞ hefur ítrekað reynt að vekja máls á þeim mikilvæga málaflokki sem samgöngur í landinu eru.
Stytting vegalengda á milli helstu staða bætir samkeppnisstöðu atvinnulífs á landsbyggðinni og eykur hagkvæmni og þægindi hins almenna vegfaranda.
Í kynningarbæklingi um núgildandi samgönguáætlun segir m.a. að stuðlað skuli að styttri ferðatíma með vegbótum svo sem styttingum. Þrátt fyrir þetta skýra markmið er lögum í landinu þannig fyrirkomið að engin trygging er fyrir því að mögulegar styttingar á grunnnetinu komi fyrir sjónir almennings.
Fyrir liggur að mögulegt er að stytta hringveg númer 1 um 20 kílómetra
á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þessi stytting næðist fram með nýjum
vegstæðum í gegnum A-Húnavatnssýslu og Skagafjörð.
Sveitarfélögin á svæðinu ákvarða aðalskipulag innan marka sinna
sveitarfélaga og hafa með því móti getað stýrt því að ný vegstæði hafa
ekki komið til álita.
Í vikunni ítrekuðu sveitarfélögin afstöðu sína og mótmæltu harðlega
veikburða tilraunum ríkisvaldsins um tillögur að nýjum vegstæðum á
svæðinu.
Í ályktun Blönduósbæjar um tillögu Vegagerðarinnar um nýtt vegstæði er
sagt „að tillagan sé til þess fallin að vekja úlfúð hjá íbúum Austur
Húnavatnssýslu“. Þá segir ennfremur að „tillaga Vegagerðarinnar feli
það í sér að færa Blönduósbæ úr alfaraleið“. Ályktun bæjarins má lesa
hér.
Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar harmar þá afstöðu
Skipulagsstofnunar að leggja til við Umhverfisráðherra að fresta
skipulagi á því svæði þar sem Vegagerðin hefur gert tillögu um nýtt
vegstæði fyrir hringveg númer eitt innan marka sveitarfélagsins. Rökin
eru þau sömu og hjá Blönduósbæ að með nýju vegstæði falli Varmahlíð úr
alfaraleið. Frétt um álit nefndarinnar má lesa hér.
Af ályktunum Blönduósbæjar og Skipulags- og bygginganefndar
Skagafjarðar má augljóslega ráða að að þeirra áliti er hringvegur númer
1 þeirra einkamál og kemur öðrum landsmönnum ekki við.
Að mati flutningasviðs SVÞ er það eitt brýnasta viðfangsefni
stjórnvalda að fá þessu kerfi breytt. Hagsmunir heildarinnar í
samgöngum landsins hljóta að eiga að koma upp á yfirborðið í máli eins
og þessu. Samgöngukerfi landsins ræður miklu um samkeppnishæfni
innanlands til framtíðar. Tilviljanakennd ákvarðanataka þar sem
hagsmunir heildarinnar komast ekki að verður að linna.
Stjórnvöld þurfa að sýna pólitískan kjark og brjóta upp það kerfi sem
hér hefur verið komið á. Flutningasvið SVÞ skorar á stjórnvöld að sýna
þennan pólitíska kjark í verki.
|