Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Áskorun til stjórnvalda um pólitíska stefnumótun til framtíđar! Prenta Tölvupóstur

hunaversfundur-10-10-2009-mynd-1-fyrir-vefinn.jpgFlutningasvið SVÞ hefur ítrekað reynt að vekja máls á þeim mikilvæga málaflokki sem samgöngur í landinu eru.

Stytting vegalengda á milli helstu staða bætir samkeppnisstöðu atvinnulífs á landsbyggðinni og eykur hagkvæmni og þægindi hins almenna vegfaranda.

Í kynningarbæklingi um núgildandi samgönguáætlun segir m.a. að stuðlað skuli að styttri ferðatíma með vegbótum svo sem styttingum. Þrátt fyrir þetta skýra markmið er lögum í landinu þannig fyrirkomið að engin trygging er fyrir því að mögulegar styttingar á grunnnetinu komi fyrir sjónir almennings.

Fyrir liggur að mögulegt er að stytta hringveg númer 1 um 20 kílómetra á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þessi stytting næðist fram með nýjum vegstæðum í gegnum A-Húnavatnssýslu og Skagafjörð.
Sveitarfélögin á svæðinu ákvarða aðalskipulag innan marka sinna sveitarfélaga og hafa með því móti getað stýrt því að ný vegstæði hafa ekki komið til álita.

Í vikunni ítrekuðu sveitarfélögin afstöðu sína og mótmæltu harðlega veikburða tilraunum ríkisvaldsins um tillögur að nýjum vegstæðum á svæðinu.

Í ályktun Blönduósbæjar um tillögu Vegagerðarinnar um nýtt vegstæði er sagt „að tillagan sé til þess fallin að vekja úlfúð hjá íbúum Austur Húnavatnssýslu“. Þá segir ennfremur að „tillaga Vegagerðarinnar feli það í sér að færa Blönduósbæ úr alfaraleið“. Ályktun bæjarins má lesa hér.

Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar harmar þá afstöðu Skipulagsstofnunar að leggja til við Umhverfisráðherra að fresta skipulagi á því svæði þar sem Vegagerðin hefur gert tillögu um nýtt vegstæði fyrir hringveg númer eitt innan marka sveitarfélagsins. Rökin eru þau sömu og hjá Blönduósbæ að með nýju vegstæði falli Varmahlíð úr alfaraleið. Frétt um álit nefndarinnar má lesa hér.

Af ályktunum Blönduósbæjar og Skipulags- og bygginganefndar Skagafjarðar má augljóslega ráða að að þeirra áliti er hringvegur númer 1 þeirra einkamál og kemur öðrum landsmönnum ekki við.
Að mati flutningasviðs SVÞ er það eitt brýnasta viðfangsefni stjórnvalda að fá þessu kerfi breytt. Hagsmunir heildarinnar í samgöngum landsins hljóta að eiga að koma upp á yfirborðið í máli eins og þessu. Samgöngukerfi landsins ræður miklu um samkeppnishæfni innanlands til framtíðar. Tilviljanakennd ákvarðanataka þar sem hagsmunir heildarinnar komast ekki að verður að linna.
Stjórnvöld þurfa að sýna pólitískan kjark og brjóta upp það kerfi sem hér hefur verið komið á. Flutningasvið SVÞ skorar á stjórnvöld að sýna þennan pólitíska kjark í verki.
 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg