Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fræðsla
Fræðsla
Fyrirlestur um stjórnsýslureglur Prenta Tölvupóstur
Sjö mikilvægar leiðbeiningareglur í samskiptum við stjórnvöld

Miðvikudaginn 24. mars kl. 15:00-17:00 standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu
fyrir námskeiði um stjórnsýslureglur fyrir skólastjórnendur innan SSSK
á 6. hæð, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Sigurður Örn Guðleifsson lögfræðingur heldur erindi.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfang: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það i eða í síma 511-3000.

 
Námskeið í apríl 2010 Prenta Tölvupóstur

ugla.jpgNámskeið fyrir stjórnendur:
LAGALEGAR SKYLDUR OG ÁBYRGÐIR STJÓRNENDA
Fim 8. apríl  2010                    14.00-18.00
Þri 13. apríl  2010                    14.00-18.00
Staður: 6. hæð, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35
Verð: 28.000,-
Skráning: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000

Lýsing á námskeiðinu
Fjallað er um helstu lagalegu skyldur og ábyrgðir stjórnenda. Farið er sérstaklega í félagsformin og löggjöf um þau með áherslu á hlutafélagaformið. Einnig er fjallað um stjórnkerfi hlutafélaga, verkefni tengsl, valdsvið og ábyrgð stjórna og framkvæmdastjóra, framkvæmdastjórnar og hluthafa.

Leiðbeinandi: Áslaug Björgvinsdóttir, hdl., dósent við Lagadeild HR og settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Áslaug lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands 1991. Hún lauk meistaragráðu í félaga‐ og evrópurétti (L.L.M.) frá lagadeild háskólans í Hamborg árið 1994.

 
Námskeið vetrarins Prenta Tölvupóstur

Spennandi námskeið verða í boði á vegum Opna háskólans og SSSK í vetur. veggpjald_-_lokaeintak.jpg Smellið á mynd til að sjá frekari upplýsingar um námskeiðin. Einnig má nálgast veggpjaldið hér.

Skráning: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000.

 

 


LÝSING Á NÁMSKEIÐUM OG LEIÐBEINENDUM

Námskeið fyrir stjórnendur:

LÆKKUN REKSTRARKOSTNAÐAR
Hvernig lækkum við kostnað og bætum fjárhagslegan árangur?
Í þessum áfanga verður fjallað um leiðir sem geta nýst fyrirtækjum til að bæta rekstrarárangur og lækka rekstrarkostnað. Fyrst er farið stuttlega yfir grundvallaratriði við árangursmat og síðan er fókusinn settur á leiðir sem færar eru til að lækka rekstrarkostnað og bæta rekstrarárangur. Meðal atriða sem skoðuð verða sérstaklega eru virðisstjórnun og afkomugreining, fjárbinding og fjármagnskostnaður, mismunandi launakerfi, launakostnaður og aðfangakostnaður.

Leiðbeinandi:  Ingvi Þór Elliðason er iðnaðartæknifræðingur að mennt og hefur 15 ára reynslu af ráðgjöf á ýmsum sviðum. Ingvi varð partner hjá KPMG árið 1999 og síðar hjá KPMG Ráðgjöf. Hann hefur verið framkvæmdastjóri Capacent Ráðgjafar frá janúar 2007 og forstjóri Capacent á Íslandi frá nóvember 2008.

MARKMIÐASETNING OG HVATNING STARFSMANNA
Að laða fram það besta í hverjum starfsmanni er eitt af megin hlutverkum millistjórnandans. Á tímum sem þessum þar sem fjárhagsrammi hefur gjarnan verið skorin niður en kröfur til frammistöðu hafa frekar aukist en minnkað, skiptir miklu máli að halda vel utan um verkefni og frammistöðu starfsmanna. Á námskeiðinu er farið í hvernig nota má starfsmannasamtöl til hvatningar fyrir starfsmenn og hvernig halda má utan um markmiðasetningar og árangur starfsmanna. Starfsmannasamtöl fara gjarnan fram einu sinni á ári eða á sex mánaða fresti og því er það ekki síður áskorun stjórnenda að halda markmiðum starfsmanna á lofti og hvetja þá til dáða dags daglega. Farið verður í hagnýtar lausnir við daglega hvatningu starfsmanna og utanumhald markmiða.

Leiðbeinandi: Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, MBA. Sérsvið Elfu Hrannar er starfsmannastjórnun, samningatækni og persónuleg hæfni. Hún hefur starfað sem starfsmannastjóri hjá Intrum á Íslandi og sem ráðgjafi í ráðningar‐ og starfsmannamálum hjá Mannafli (nú Capacent). Elfa stýrði verkefninu Mannauður sem var samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans og fleiri aðila. Elfa starfar nú sem verkefnastjóri í Opna Háskólanum í HR.

ÚR ÖFLUGUM SÉRFRÆÐINGI Í ÖFLUGAN STJÓRNANDA
Hnitmiðað og raunhæft námskeið sem kennir nýjum stjórnendum að takast á við verkefni sín af enn meiri fagmennsku, krafti og festu.
Fjallað er um helstu verkefni stjórnenda, þar á meðal að byggja upp skipulag innan fyrirtækis, sinna áætlanagerð,stuðla að öflugu eftirliti og stýra starfsfólki á sanngjarnan og drífandi hátt. Fjallað er um helstu áskoranir stjórnenda í rekstri fyrirtækja í dag, sem meðal annars eru að fylgja eftir stefnumótun stjórnar, stýra breytingum, fylgjast með og innleiða nýjustu tækni sem nýtist fyrirtækinu og í raun stýra þeim auðlindum sem fyrirtækið býr yfir (starfsfólk, tæki og búnaður, fjármagn). Einnig að stuðla að frumkvöðlahugsun starfsfólks þannig að nýjar hugmyndir kvikni.
Þá er fjallað um hlutverk stjórnandans sem fyrirmyndar í fyrirtæki og boðbera góðs siðferðis og sérstaklega er fjallað um hvað gerir stjórnanda að leiðtoga og hvernig tímastjórnun, góð samskiptahæfni og öflug samningatækni móta góðan stjórnanda.

Leiðbeinandi: Þór Clausen Msc., sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík. Þór lauk Cand.Oecon námi í viðskiptafræði frá HÍ 1996 og meistaraprófi í fjármálum frá sama skóli 2005. Hann stýrði því sem kallast Opni háskólinn í dag (hét þá Símennt og Stjórnendaskólinn) frá árunum 2005‐2007 og hefur starfað hjá HR að stjórnunarstörfum, kennslu og ráðgjöf síðan 2002. Hann hefur kennt námskeið á borð við Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, Stjórnun og stefnumótun og Fjármál fyrirtækja í BSc námi og fjöldann allan af námskeiðum fyrir stjórnendur undanfarin ár.

LAGALEGAR SKYLDUR OG ÁBYRGÐIR STJÓRNENDA
Fjallað er um helstu lagalegu skyldur og ábyrgðir stjórnenda. Farið er sérstaklega í félagsformin og löggjöf um þau með áherslu á hlutafélagaformið. Einnig er fjallað um stjórnkerfi hlutafélaga, verkefni tengsl, valdsvið og ábyrgð stjórna og framkvæmdastjóra, framkvæmdastjórnar og hluthafa.

Leiðbeinandi: Áslaug Björgvinsdóttir, hdl., dósent við Lagadeild HR og settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Áslaug lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands 1991. Hún lauk meistaragráðu í félaga‐ og evrópurétti (L.L.M.) frá lagadeild háskólans í Hamborg árið 1994.


Námskeið fyrir almenna starfsmenn:

SAMSKIPTI OG SAMVINNA
Er hægt að bæta sig í samskiptum eða eru þau bara svokallað „Common Sense“? Þeir sem hafa verið í störfum þar sem mikið mæðir á samskiptahliðinni vita að hægt er að tileinka sér ákveðna tækni sem nýtist í samskiptum og að með góðri þjálfun geta allir bætt sig á þessu sviði.

Á námskeiðinu verður þátttakendum kynnt helstu grundvallaratriði sem geta bætt færni þeirra í samskiptum. Farið verður í notkun virkrar hlustunar og skoðuð samskipti í hópum. Einnig verða grunnatriði í samningatækni kynnt til sögunar og hvernig nýta má samningatækni í daglegu lífi. Námskeiðið er í formi fyrirlesturs og æfinga og gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda.

Leiðbeinandi: Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, MBA. Sérsvið Elfu Hrannar er starfsmannastjórnun, samningatækni og persónuleg hæfni. Hún hefur starfað sem starfsmannastjóri hjá Intrum á Íslandi og sem ráðgjafi í ráðningar‐ og starfsmannamálum hjá Mannafli (nú Capacent). Elfa stýrði verkefninu Mannauður sem var samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans og fleiri aðila. Elfa starfar nú sem verkefnastjóri í Opna Háskólanum í HR.

STEFNUMÓTUN Í EIGIN LÍFI
Á námskeiðinu er fjallað um hvernig hvert og eitt okkar getur kynnst eigin viðhorfum og lífsgildum með það að markmiði að móta stefnu í eigin lífi út frá þeim. Þátttakendur greina hvað er mikilvægt í lífi þeirra og hvað gefur því gildi. Þeir forma síðan markmið út frá þessari greiningu og forgangsraða þeim.

„It is extraordinary how extraordinary the ordinary person is“ (George Will)
Lausleg þýðing: „Það er óvenjulegt hve óvenjuleg venjuleg manneskja er“

Leiðbeinandi: Halldóra Hinriksdóttir, MBA og forstöðumaður Stjórnmenntar Opna Háskólans. Halldóra hefur margra ára reynslu af stjórnendaþjálfun en hún starfaði í sex ár hjá Capacent ráðgjöf og þar áður hjá Mennt – samstarfsvettvangi atvinnulífs og skóla. Hennar sérsvið eru stefnumótun, breytinga‐ og verkefnastjórnun ásamt persónulegri hæfni einstaklinga.

GÓÐUR STARFSANDI Á VINNUSTAÐ
Er góður andi á vinnustað tilviljun eða er markvisst hægt að hafa áhrif á hann?
Farið er í gegnum mikilvægi þess að starfsmenn, hver fyrir sig, ákveði að hans eigið framlag skipti lykilmáli til að vinnustaðurinn verði enn betri. Talað er um viðhorf og hvort sé hægt að velja sér viðhorf sem skilar betri líðan og meiri vinnutengdum árangri. Velt er upp hvort og hvernig farið er með ágreining á vinnustaðnum ásamt því að minna á mikilvægi persónulegra tengsla.

Leiðbeinandi: Sigurjón Þórðarson ráðgjafi og þjálfari hjá Capacent. Sigurjón hefur mikla reynslu sem ráðgjafi og kennari og hefur haldið fjölda námskeiða í team building og ráðgjafahæfni. Sérsvið hans eru liðsheildar og leiðþjálfun, samskipti, fyrirlestrar, persónuleg hæfni,innleiðing breytinga, tenging gilda við starfsmenn, stjórnun og þjálfun verkefnahópa og viðtöl við stjórnendur og sérfræðinga

FJÁRMÁL FJÖLSKYLDUNNAR
Fjallað er um helstu atriði sem varða fjárhag heimilanna við núverandi aðstæður. Farið verður yfir hvernig best sé að ná yfirsýn yfir fjármálin og hvernig hægt er að skipuleggja fjármálin fram í tímann t.d. með notkun heimilisbókhalds. Einnig verður fjallað um aðferðir til að taka betri fjárhagslegar ákvarðanir og þau atriði sem skipta máli við að forgangsraða í fjármálum heimilisins. Síðast en ekki síst verður farið í gegnum grunnatriði í samningatækni, því mögulega getur þurft að semja um lausnir á vanda við kröfuhafa. Námskeiðið verður byggt upp með því að fjalla um mögulegar lausnir á hefðbundnum vandamálum sem
fjölskyldur þurfa að kljást við.

Leiðbeinandi:Sigurður Erlingsson, M. Sc. í fjármálum og löggiltur verðbréfamiðlari. Sigurður hefur m.a. starfað sem stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2005 og verið leiðbeinandi frá árinu 2001 á fjölmörgum styttri og lengri opnum fjármálanámskeiðum á vegum Stjórnendaskólans og Símenntar (nú Opni háskólinn í HR).


 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg