|
Samtök sjálfstæðra skóla hafa skipað samninganefnd sem hefur samningsumboð flestra skóla innan samtakana. Samninganefndinni hefur verið falið að semja við þau stéttarfélög, sem starfsmenn sjálfstætt starfandi skóla tilheyra. Fyrstu viðræður eru hafnar og eru þær við Félag leikskólakennara.
Samninganefndina skipa:
-
Áslaug Hulda Jónsdóttir, Hjallastefnan
-
Axel Einar Guðnason, Hjallastefnan
-
Guðmundur Pétursson, Skólar ehf
-
Kristín Margrét Baranowski, Skólar ehf
-
Jón Örn Valsson, Fossakot/Korpukot.
Ragnar Árnason lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins er samninganefndinni innan handar.
Allar upplýsingar veitir Áslaug Hulda, formaður samninganefndar, í síma 858-3555 eða
Ţetta netfang er variđ fyrir rusltölvupósti, ţú ţarft ađ hafa Javascript virkt til ađ skođa ţađ
|
|
Samtökin héldu aðalfund fimmtudaginn 28. apríl síðast liðinn. Gestur fundarins var Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík. Ragnar kaus að hafa innlegg sitt á spjallnótum og sagði m.a. frá fyrirhuguðum breytingum á Menntasviði. Þær fela meðal annars í sér að sameina leik- og grunnskólasvið undir einn hatt. Ragnar var góður gestur, eins og vænta mátti. Stjórnarkjör var einfalt; öll stjórnin endurkjörin og skoðunarmenn reikninga einnig.
|
|
Lesa meira...
|
|
Breytingar á grunnskólalögum eru í deiglunni. SSSK hefur gefist kostur á að senda inn umsögn og breytingartillögur og hefur talsverð vinna verið lögð í að lesa yfir, skiptast á skoðunum og koma viðhorfum og sjónarmiðum okkar á framfæri þar sem augljósir hagsmunir eru í húfi.
Hér má nálgast umsögn SSSK.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 8 af 19 |