|
08. ágúst 2008 |
Flutningasvið SVÞ óskaði á vormánuðum 2007 eftir breytingu á reglugerð
um frágang á farmi við samgönguráðuneyti. Umferðarstofa fékk erindið
til vinnslu og átti flutningasviðið nokkra fundi um málið með fulltrúum
samgönguráðuneytis, Umferðarstofu og fleirum er málið varðaði. Umræða
þessara aðila leiddi til þess að Umferðarstofa óskaði eftir hlutlausri
úttekt Línuhönnunar hvað varðaði tiltekna þætti í reglugerðinni. Þessi
vinna hagsmunaaðila og stjórnsýslu hefur nú skilað sér í nýrri
reglugerð samgönguráðuneytisins um hleðslu og frágang farms sem tók
gildi 7. júlí síðastliðinn.
|
|
Lesa meira...
|