|
|
25. ágúst 2011 |
|
Samstarfsvettvangur um samgöngumál í Húsi Atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6 hæð, boðar til fundar þann 30. ágúst nk. kl. 9:00 – 11:00. Fundurinn er tvískiptur og geta gestir setið annað eða bæði erindin.
Dagskrá fundar:
- 9:00 – 9:45 Hvítbók ESB; Stefna í samgöngumálum til ársins 2050.
Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur, Innanríkisráðuneytinu, greinir frá Hvítbók ESB, stefnuyfirlýsingu Evrópusambandsins í samgöngumálum og sameiginlegri umsögn EFTA ríkjanna.
- 10:00 – 11:00 Solas Polar Code - breytingar á kröfum til skipa sem sigla um heimskautasvæðið
Ólafur Briem, Siglingastofnun, kynnir og gerir grein fyrir þeim breytingum sem fram undan eru.
Fyrri hluti fundarins er ætlaður þeim sem starfa á sviði samgangna og flutninga, hvort heldur er á lofti, láði eða legi en seinni hluti fundarins þeim sem eiga hagsmuna að gæta varðandi skipasiglingar um eða við heimskautasvæðið.
Fundarstaður: Borgartún 35, 6. hæð.
Nánari upplýsingar og skráning á
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Dagskrá til útprentunar.
|
|
|
24. júní 2011 |
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um samgöngumál miðvikudaginn 29. júní kl. 8.30 - 10.00 á Grand Hótel Reykjavík - Gullteig. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að ráðast nú þegar í arðbærar samgöngufjárfestingar til að auka öryggi, fjölga störfum og efla hagvöxt. Frummælendur er Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Kristján Möller, alþingismaður og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Fundarstjóri er Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00.
Skráning þátttöku á vef SA.
|
|
|
20. maí 2011 |
|
Á Samgönguþingi þann 19. maí sl. kynnti innanríkisráðherra skipan starfshóps sem mun hafa það hlutverk að gera tillögur um hvernig standa megi að því að koma á strandsiglingum að nýju.
Á vef Innanríkisráðuneytisins segir ennfremur að hópnum sé ætlað að skoða mögulega flutninga, greiningu á skipakosti, áætluðum rekstrarkostnaði útgerða, viðkomuhöfnum, tíðni ferða, áætlun um sjálfbær flutningsverð og öðrum þeim atriðum sem skipt geta máli.
Til hliðsjónar geti hópurinn nýtt sér þær skýrslur og greinargerðir sem fyrri starfshópar hafa lagt fram. Nánari útfærsla á verkefni hópsins verður lögð fram á fyrsta fundi hans í formi verkefnaáætlunar en honum er ætlað að skila niðurstöðum sínum fyrir 1. nóvember 2011.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
18. maí 2011 |
Þann 17. maí sl. boðaði Vegagerðin til fundar með flutningsaðilum en það hefur verið gert reglulega undanfarin misseri og þá verið farið yfir þau mál sem á mönnum brenna hverju sinni. Fundurinn var ágætlega sóttur en hann sátu um tuttugu manns, þar af fjórir fulltrúar Vegagerðar.
Vegamálastjóri, Hreinn Haraldsson, tók fyrstur til máls og ræddi m.a. vetrarþjónustuna. Sagði hann niðurskurð í vetrarþjónustu hafa verið um 8-9 % sl. vetur og hafi það verið 3ja árið í röð sem hún væri skorinn niður og mætti ekki við meiru. Áhrifanna gætti ennfremur í sumarþjónustu, s.s heflun vega.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 9 - 12 af 115 |