Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Hver ber ábyrgð á greiðum flutningaleiðum? Prenta Tölvupóstur
03. júlí 2009
holtagadar-myndir_page_4.jpgFlutningasvið SVÞ hefur unnið markvisst að því að vekja athygli samgönguyfirvalda og Reykjavíkurborgar á þeim vanda að búið er að loka starfsemi hafnanna inni í Reykjavíkurborg með mannvirkjum sem leiða til þess að ökutæki með farma af afbrigðilegri stærð fara langar leiðir í gegnum íbúahverfi, framhjá skólum og leikskólum til að komast út úr borginni.
Lesa meira...
 
Landvari vistaður hjá flutningasviði SVÞ Prenta Tölvupóstur
26. júní 2009
landvari_025_f._vefinn.jpgAðalfundur Landvara var haldinn á dögunum. Þar var formlega tekin ákvörðun um að leggja félagið í hendur flutningasviðs SVÞ. Þar með var formlega fylgt eftir ákvörðun sem tekin var á aðalfundi félagsins 2006 en síðan þá hafa félagar í Landvara ekki greitt aðildargjöld.
Landvari á sér merka sögu og með þessari ákvörðun er nafni og tilgangi félagsins viðhaldið og er áfram í höndum samtaka sem hafa hagsmuni vöruflutningagreinarinnar á Íslandi að leiðarljósi . Flutningasvið SVÞ er stolt af því að hafa tekist að sameina vöruflutningagreinina undir einum hatti og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið í áratugi á undan hjá samtökum eins og Landvara. Ætlunin er að byggja á þeim merka grunni og halda áfram á sömu braut.

 
Samantekt um fund um ákvarðanatöku og samgöngubætur haldinn 16. júní Prenta Tölvupóstur
19. júní 2009

Flutningasviðið hélt fund undir yfirskriftinni „Er til rétt aðferð til að forgangsraða vegaframkvæmdum?"  Tilgangur fundarins var að fá upplýsingar um hvar ákvörðunarvaldið liggur um samgönguframkvæmdir í dag og í framhaldi af því  kalla fram hugmyndir um hvernig því væri  best fyrirkomið.  Það hvernig ákvarðanir eru teknar um einstaka framkvæmdir eða forgangsröðun þeirra virðist ekki alltaf liggja ljóst fyrir og því var eftirsóknarvert að kalla eftir áliti sérfræðinga um það efni. 

Lesa meira...
 
Er rétti tíminn núna til að stórauka einkaframkvæmd í vegamálum? Prenta Tölvupóstur
19. júní 2009
mynd_af_fundi_um_strtak__vegamlum_hausti_2006_f._vefinn.jpgÍ gær tilkynnti ríkisstjórnin að stærsti einstaki samdráttarliður ríkisútgjalda á þessu ári og því næsta væri til vegaframkvæmda. Draga á saman útgjöld til vegamála um 3,5 milljarða á þessu ári og 8,3 á því næsta.

SVÞ skorar á ríkisstjórnina að láta þetta ekki leiða til þess að samgönguframkvæmdir dragist saman um þessar fjárhæðir heldur skoði með opnum huga arðsemismat einstakra framkvæmda með tilliti til mögulegra veggjalda og geri áætlun um stóraukna einkaframkvæmd í málaflokknum.

Mynd af fundi SVÞ um stórátak í vegamálum 2006 - áhuginn var mikill og vænta má að svo sé enn.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Endir >>

Úrslit 77 - 80 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg