Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Sameinast um umferðarlagafrumvarpið Prenta Tölvupóstur
25. ágúst 2009
hus_atvinnul.jpgSamtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu hafa sameinast um að óska eftir því við samgönguráðherra að umferðarlagafrumvarpið verði ekki lagt fram fyrr en á vorþingi 2010. Fram að áramótum verði tíminn nýttur til að gera lagfæringar á þeim hluta frumvarpsins sem snýr að fólks- og vöruflutningagreininni og ágreiningur hefur staðið um. Ítrekað er í bréfi til ráðherra mikilvægi þess að vanda til verka í þeim tilgangi að skapa frið um málið.
 
Brot á akturs- og hvíldartímareglum varði sviptingu Prenta Tölvupóstur
14. ágúst 2009

stopmerki.jpgEins og kunnugt er hefur samgönguráðherra birt drög að frumvarpi til umferðarlaga sem eru til  umsagnar hjá ráðuneytinu til 15. sept. nk. Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs SVÞ var fulltrúi í nefndinni en skrifaði ekki undir endanleg drög.

Þær breytingar sem sérstaklega snúa að atvinnubílstjórum og ástæða er til að vekja athygli á eru að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að brot vegna ákvæða laganna um aksturs- og hvíldartíma, um stærð, heildarþyngd og ásþunga ökutækja, um búnað slíkra ökutækja, og um hleðslu, frágang og merkingu farms skuli almennt séð ekki sæta viðurlögum í formi refsinga heldur varði slík brot stjórnvaldssektum sem ákveðnar verða af Vegagerðinni. 


Lesa meira...
 
LV-fréttir 2009 Prenta Tölvupóstur
03. júlí 2009
pages_from_lv_frttir_jl09_a4vefur.jpgFlutningasvið SVÞ hefur gefið út fréttabréf á pappír árlega til dreifingar á félaga í Landssambandi vörubifreiðaeigenda síðan þeir komu til liðs við SVÞ 2007.
Fréttabréfið er lagt undir samgöngumál og fyrirhugaða endurskoðun samgönguáætlunar að þessu sinni.
Lesa meira...
 
Erlend bílalán einyrkja Prenta Tölvupóstur
03. júlí 2009
blar_bill.jpgLágt gengi íslensku krónunnar er víða vandamál í íslensku samfélagi. Mikil umræða hefur verið í vikunni um erlend bílalán einstaklinga og hvaða lausnir séu mögulegar á þeirra vanda. Fram hefur komið að stofnaður hafi verið starfshópur nokkurra ráðuneyta til að koma með tillögum um til aðgerða megi grípa til að taka á þessum vanda.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Endir >>

Úrslit 73 - 76 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg