Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Munið að skrá þátttöku á kynningarfund um flutningafræði Prenta Tölvupóstur
13. nóvember 2009
fluningafraedi-tilkynning-um-fund.jpgHaldinn á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins miðvikudaginn 18. nóvember kl. 08:30.

Sjá nánar tilkynningu um kynningarfundinn hér og Auglýsingu frá Opna háskólanum hér. Auk nánari upplýsinga á vefslóðinni hér að neðan:

http://www.opnihaskolinn.is/fagmennt/namsbrautir/flutningafraedi/
 
Forgangsatriði flutningagreinarinnar rædd við Evrópuþingmenn Prenta Tölvupóstur
13. nóvember 2009
samgnguhpur_vefur2.jpgFulltrúar Samgönguhóps BUSINESSEUROPE, sem m.a. komu til fundar á Íslandi sumarið 2008, gerðu þingmönnum Evrópuþingsins grein fyrir stærstu áherslum atvinnugreinarinnar 2009 – 2014 á morgunverðarfundi 4. nóv. sl.
Áhersla er lögð á á að Evrópuþingið og Framkvæmdastjórnin geri sér grein fyrir og samþætti eftirfarandi áherslur inn í alla stefnumótun og lagasetningu Evrópusambandsins:

  • Framlag flutningastarfseminnar til hagkerfisins
  • Að vinna að virkum innri markaði fyrir flutningastarfsemi á öllum sviðum
  • Að styrkja samþættingu mismunandi tegunda flutninga í stað þess að etja þeim hvorum gegn öðrum
  • Leggja áherslu á rannsóknir og nýsköpun til lausna í átt til sjálfbærra flutninga. Lausnirnar munu fyrst og fremst liggja í nýrri tækni.
  • Betra regluverk - forðast óþarfan og íþyngjandi kostnað vegna skrifræðis og reglugerðafargans
Brian Simpson formaður samgöngunefndar Evrópuþingsins fagnaði framlagi samgönguhópsins og óskaði eftir frekari framlagi atvinnulífsins þegar Framkvæmdastjórnin tekst á við Hvítbókina um þennan málaflokk í byrjun næsta árs.

Áherslur BUSINESSEUROPE um „transport“ 2009 – 2014 má finna hér.

 
Tækifæri til að hafa áhrif á framtíðarstefnu ESB Prenta Tölvupóstur
13. nóvember 2009

eu-bygging-brussel.jpgBoð um fund með þátttöku hagsmunaaðila um framtíðarstefnu ESB í samgöngum og flutningum.
Fundurinn er haldinn 20. nóvember 2009 nk. í byggingu Evrópusambandsins; "Charlemagne" Building, rue de la Loi 170 – 1049 Bruxelles. Þátttaka er öllum opin og ókeypis.

Dagskrá fundarins er að finna hér. 

Lesa meira...
 
"Hvíldin tekin..." Prenta Tölvupóstur
06. nóvember 2009
hvldartminn_tekinn.jpg
Hvíldartíminn tekinn
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu sendu frá sér sameiginlegt bréf til samgönguráðuneytisins vegna verklags ráðuneytisins við innleiðingu nýrrar reglugerðar um aksturs- og hvíldartíma sem mikið hefur verið fjallað um hér.

Myndir segja oft meira en mörg orð og myndin hér með þessari frétt er ein af þeim, en hana tók Þórarinn Guðjónsson, bílstjóri hjá Olíudreifingu. Um viðurkenndan skilning á þessu hefur málflutningur fulltrúa samtaka atvinnulífsins í þessu máli snúist frá upphafi. Reglugerð ESB um aksturs- og hvíldartíma hefur að markmiði að auka umferðaröryggi og vinnuvernd.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Endir >>

Úrslit 57 - 60 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg